Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 21
Drög að kvikmyndahandriti ...
Eitt kvöld ákveður Salka Valka að losna undan örlögum kvenna. Hún dregur fram
gamlar síðbuxur, gerir við götin og fer í þær, stýfir sína ljósu lokka. Daginn eftir birt-
ist hún á leikvellinum klædd eins og strákur. Það er skopast meira að henni en
nokkru sinni fyrr. En hún hefur tekið ófrávíkjanlega ákvörðun íyrir lífstíð og skorar
á strákana að slást við sig. Hún lúskrar á þeim, hverjum á fætur öðrum, og skilur þá
eftir liggjandi á jörðinni grenjandi.
Það er bara einn strákur sem hún ræður ekki við: Arnold, sonur fátæks ekkils. Þau
halda áfram að slást eins og ung dýr þangað til föt þeirra eru rifin í tætlur. Þau standa
organdi af heift hvort gegn öðru. Þá gerir Arnold lokaatlögu að henni og hefur hana
undir. Hann er harðhentur við hana.
Um kvöldið iðrast drengurinn. Hann tínir saman allt sitt fátæklega dót, þar á
meðal nisti móður sinnar heitinnar með smámynd af honum sjálfum á barnsaldri,
fer yfir til Sölku Völku og færir henni allar eigur sínar að gjöf. (Hér er tækifæri til að
sýna vönduð tilþrif.)
Móðir Sölku Völku deyr af völdum þrældóms og illrar meðferðar og stjúpfaðir-
inn yfirgefur barnið.
Munaðarleysinginn Saíka Valka.
Eina fallega húsið í þorpinu á gamall, hörkulegur en hjartagóður fiskkaupmaður
sem kemur á hverri vertíð, stundum ásamt konu sinni og ungum syni, Angantý, og
dvelur á staðnum í fáeinar vikur í viðskiptaerindum. Þegar þau frétta um munaðar-
leysingjann ákveða þau að taka Sölku Völku til sín og ættleiða hana. Frúin kaupir fal-
legan kjól handa henni og lofar að fara með hana til borgarinnar og gera úr henni
fína dömu. Allt í þessu húsi er Sölku Völku sem fagur draumur. Einkennilegt samtal
Sölku Völku og hins fágaða sonar fiskkaupmannsins, Angantýs.
En fyrsta kvöldið í húsinu heyrir Salka Valka af tilviljun heiftarlegt rifrildi milli
gömlu hjónanna sem lýkur með því að eiginmaðurinn slær konu sína með inniskó.
Um nóttina, þegar húsið er í fasta svefni, grefur Salka Valka upp gömlu dulurnar sín-
ar úr ruslakassanum, fer úr fallega kjólnum og strýkur í ljótu síðbuxunum sínum.
Næsta morgun birtist hún á bryggjunni þar sem sjómennirnir landa afla sínum, við
vinnu.
Þegar hún eldist ræður hún sig á báta og rær til fiskjar eins og hver annar sjómað-
ur. Hún er svo óhemjuhugrökk og dugleg að allir formennirnir í plássinu kjósa hana
helst. Eftir fáein ár eignast hún sjálf bát og bátshöfn. Hún fær fljótlega orð á sig fyr-
ir að vera gleggsti formaðurinn í plássinu og heppnasti ofurhuginn af öllum sjó-
mönnunum. Hún er virt eða dáð af sumum, aðrir óttast hana af því það er vitað mál
að hún getur ráðið við hvaða karlmann sem er í þorpinu. í hvert skipti sem henni er
andmælt beitir hún sterkum hnefum sínum.
Arnold.
Þegar Arnold vex úr grasi koma í ljós í eðli hans þjóðlegir íslenskir veikleikar fyrir
hestum, skáldskap og konum. Hann reynir sig sem formaður á bát en allt gengur á
afturfótunum fyrir honum og hann verður að gefast upp.
TMM 2004 • 1
19