Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 27
EKKI SKRIFSTOFUMAÐUR I LISTINNI
þess settum við upp Fávitann,
Leitt hún skyldi vera skækja,
tvöfalda sýningu á Lýsiströtu
og Soldiers Speaking Cleanly
eftir Mike Stott og loks söng-
leikinn On the Town. Pabbi
kom á Fávitann þar sem ég lék
Ippolít (eins og ég gerði seinna
í Þjóðleikhúsinu) til að sjá son-
inn á breskum leikhúsfjölum,
en skömmu seinna dó hann.
Honum hefur líklega fundist
hann búinn að sjá nóg.“
Hvenær komstu svo heim?
„1989. Þá vorum við ekki
komin í Evrópska efnahags-
svæðið og það var ekki auðvelt
að fá atvinnuleyfi í Englandi -
nema giftast, og þar var strangt
eftirlit. En það voru fínir um-
boðsmenn á eftir mér, sérstak-
lega einn sem veðjaði einnig á
þau tvö bekkjarsystkini mín sem hafa gert það einna best. Annað þeirra
var Rhys Ifans sem lék meðleigjanda Hughs Grant í Notting Hill. Hin
heitir Geraldine Sommerville, kannski þekktust hérlendis í hlutverki
mömmu Harry Potter. Ég hefði því verið í góðum höndum.
En þegar ég fór heim í jarðarför pabba hafði ég farið í áheyrnarpróf
fyrir kvikmyndina Ryð sem var byggð á leikritinu Bílaverkstæði Badda
eftir Ólaf Hauk Símonarson og ég landaði því hlutverki. Það gerði mér
auðveldara að ákveða mig. Þetta var líka dramatískur tími í lífi íjölskyldu
minnar og ég vildi vera heima. Svo fékk ég hlutverk í Kjöti eftir Ólaf
Hauk í Borgarleikhúsinu um haustið - þetta var byrjunin á miklu Ólafs
Hauks-tímabili - og var þar áfram í tvö ár. Þaðan fór ég yfir í Þjóðleik-
húsið þar sem ég hef verið síðan, þó að nú sé ég í ársleyfi þaðan til að
stýra Nýja sviðinu.“
Stefán Jónsson, leikari og leikstióri.
Þar sem kjarninn skín skærast
Þú hefur snúið þér að leikstjórn undanfarin ár - var það val þitt?
„Já, enginn neyddi mig út í þetta, en það kraumaði samt aldrei í mér
TMM 2004 • 1
25