Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 29

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 29
EKKI SKRIFSTOFUMAÐUR I LISTINNI leikhúsinu öll þessi ár. Ef maður er með opið fyrir viðtækið þá lærir mað- ur heilmikið um leikstjórn af því að vinna með góðum leikstjórum - og slæmum ekki síður. Leikarar eru afar mismunandi. Sumum finnst best að láta segja sér ná- kvæmlega fyrir verkum, hvar þeir eigi að standa og hvað þeir eigi að gera. Ég hef hins vegar alltaf haft þörf fyrir að koma með mitt inpút, og því betri sem leikstjórinn er því meiri innblástur verður hann manni og því meira vill maður leggja fram sjálfur. Ég er ekki að segja að önnur gerðin sé betri en hin en oft finnst mér leikarar heldur passívir, eins og hálfgerð- ir skrifstofumenn í listinni, með fullri virðingu fyrir skrifstofumönnum. Ég er alla vega þakklátur fyrir að vera leikari eins og ég er vegna þess að það hefur leitt mig út í leikstjórnina. í dag er ég mjög þakklátur leikandi leikstjóri.“ Ekki bara fyrir eyrun Nú hefurðu sett upp fjórar sýningar í atvinnuleikhúsum, afar ólíkar inn- byrðis. Það er alls ekki eins og sami maðurinn hafi sett þær upp. „Ja, ólík verk kalla á ólíkan stíl og ólíkar vinnuaðferðir. Það á kannski eftir að koma betur á daginn hvort ég hafi ákveðinn stíl sem leikstjóri, en ég hef forðast svoleiðis hugsunarhátt. Ég forðast skúffur. Það hefði verið fáránlegt að setja Sporvagninn upp í sama stíl og Kvetch. Ég kynntist verkum Berkoffs í London og sá hann sjálfan á sviði. Ég skynjaði vel kraft hans og stíl og það hafði áhrif á vinnuaðferðirnar sem ég beitti í Kvetch, án þess að ég væri að stæla hann. Öll hans verk kalla á rosalega orku og hraða. Hann er eins og vélbyssa, maðurinn, enda er hann ekki allra. Hann er ekki fastur passi í efnisskrá leikhúsa og er frekar utan alfaraleiðar - og þetta var í fyrsta skipti sem hann var settur upp hér á landi. í handritinu voru engar leiðbeiningar um uppsetningu og ég hafði aldrei séð þetta verk á sviði svo við leituðum bara, þreifuðum á verkinu. Ég var auðvitað með einvala lið með mér, stórkostlega listamenn, sem skiptir öllu máli. Ég vil absolútt hafa leikara sem fóðra mig alveg eins og ég þá. Ég er ekki fyrir aðferðina „directing by numbers“, að nota leikara eins og taflmenn, mér finnst það ólistrænt og leiðinlegt. Ég vann líka með Snorra Lrey í leikmyndinni, Sigurði Kaiser í ljósunum og Jóni Halli í tónlistinni, og all- ir þessir þættir spiluðu vel saman að þessari útkomu. Eins má segja um Sporvagninn. Ég legg mikla áherslu á að leikhús sé ekki bara fyrir eyrun eins og mér finnst stundum lögð of mikil áhersla á í gagnrýni, hún vill verða of bók- menntaleg. Sumir gagnrýnendur virðast ekki hafa skilning á hvað leikhús TMM 2004 • 1 27
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.