Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 34

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 34
Stefán Jónsson þess að ekki eru nógu margar stöður í húsunum og vegna þess að fólk hefur mismunandi hæfileika. En margt er verulega gott hjá leikhópunum og fjöldi sýninga er ótrúlega mikill. Þær spanna breitt svið þótt uppi- standsleiksýningar sem eiga að svala kynjunum séu heitar núna. Dollara- merkin eru stundum full áberandi á kostnað frumleika þótt öll viljum við ná hylli íjöldans. En til dæmis sigurganga Vesturports á erlendri grundu sýnir að listrænn metnaður og djörfung skora flest mörk og veita stóru leikhúsunum hressilegt aðhald. Menn mega ekki festast í viðjum vanans.“ Hver er bestur? Nú er sagt að Stefán Baldursson hœtti sem þjóðleikhússtjóri eftir nokkra mánuði. Segjum nú svo að þú fengir starfið, hverju myndirðu breyta? „Guð minn góður,“ segir Stefán og sýpur hveljur. Hann hugsar sig um drykklanga stund og segir svo: „Ég myndi byrja á að opna alla glugga og dyr og hleypa inn fersku lofti. Ég myndi reyna að laða að húsinu fólk, bæði unga og aldna, sem eru að gera spennandi hluti og leyfa því að spreyta sig. Ég myndi leggja þunga áherslu á að fólkið sem starfaði við húsið væri ánægt og vera í góðum samskiptum við það, því það skiptir höfuðmáli að allir séu ánægðir á vinnustað. Ég myndi reyna að koma til dyranna eins og ég væri klæddur og leyfa fólki að hafa greiðan aðgang að mér með sínar áhyggjur og drauma. Allir verða að fá að blómstra, allir verða að fá verkefni sem ögra kröftum þeirra og hvetja þá til dáða. Tæki manns og tól ryðga ef maður fær ekki að nota þau og sjálfstraustið einnig. Ég myndi minnka yfirbygginguna í húsinu og endurskipuleggja deildirnar með góðra manna hjálp. Ég myndi skipuleggja verkefnaval lengra fram í tímann en nú er gert og standa með mínum ákvörðunum, vera ekki hræddur þó að önnur leikhús taki ákvarðanir sem ögri mínum. Þannig veit fólk hvað það fær að gera lengra fram í tímann því það er óþægilegt að láta boða sig á samlestur með korters fyrirvara. Þetta myndi bæta starfsandann. Ég myndi líka þróa valddreifingu þannig að ég væri ekki með öll spil á minni hendi. Ég myndi reyna að fá fólkið með mér til að byggja upp gott flaggskip íslenskrar leiklistar þar sem allir væru stolt- ir af að vera í skipshöfninni. Ég vil fá í starf þjóðleikhússtjóra manneskju sem byggir upp jákvæða skapandi orku í fyrirtækinu. Ég er orðinn leiður á baknagi. Sjálfsmynd okkar virðist oft byggjast á því að þurfa að rífa aðra niður. Það er eins með þessa vinstri-hægri pólitík. Eitt er að líta til hægri og vinstri áður en maður gengur yfir götu til að verða ekki undir bíl, en þessi þráhyggja sem 32 TMM 2004 • 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.