Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 45

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 45
Línudans heima hjá sér eða einhverri álíka einmana konu á þessum tíma sólarhringsins, sér í lagi um helgar, en fyrst hann ætlaði að mæta þýddi það að hann var edrú. Hinn sjúkraliðinn beið þeirra við enda gangsins. Hallaði sér uppað útflúruðum dyrastaf og hristi höfuðið þegar þau birtust. „Ég hef aldrei séð annaðeins,“ muldraði hann um leið og hann benti innum opnar dyrnar. „Sá strax að hann var dauður en tékk- aði samt á hálsslagæðinni - hinumegin - til að vera viss, áður en ég hringdi í ykkur. En að öðru leyti hef ég ekki snert neitt.“ Stefán og Katrín gægðust innfyrir. Þau höfðu heldur aldrei séð annaðeins. Maðurinn sat álútur á bleiku klósettinu, allsnakinn. Hægri handleggurinn hékk slakur niður með síðunni sem að þeim sneri en sá vinstri hvíldi olnbogann á lærinu og studdi undir höfuðið með krepptum hnefa. Svart skefti á stóreflis hníf stóð útúr hálsin- um hægramegin, rétt neðanvið eyrað, og oddurinn gekk útum húðina vinstramegin við áberandi barkakýlið. Dumbrauðir, glans- andi blóðtaumar lágu niðreftir öxlum hans, bringu og lærum, og enduðu í tveimur, stórum pollum á flísalögðu gólfinu. Blóðslettur voru uppá miðja veggi beggja vegna og líka á bleiku handklæðinu við vaskinn. „Hver er þetta?“ hvíslaði Stefán. Svo ræskti hann sig. „Hver er þetta?“ endurtók hann, hátt og snjallt. Of hátt og snjallt, hugsaði hann um leið og hann sleppti orðinu sem bergmálaði á líflausum ganginum. „Vitum við það?“ Þetta síðasta hljómaði nokkurnveg- inn eðlilega, hélt hann. Lundinn kinkaði kolli. „Mikael Kristinsson,“ las hann uppúr lítilli kompu sem hann dró uppúr brjóstvasanum, „framkvæmdastjóri.“ „Framkvæmdastjóri hvers?“ spurði Katrín, hvorki of hátt né of lágt. Lundinn yppti öxlum. „Það veit ég ekki.“ „Náðirðu í strákana?“ spurði Stefán þegar þau örkuðu frameftir ganginum. „Árni er rétt ókominn,“ svaraði Katrín. „Guðni var - ekki tiltækur.“ Stefán rumdi. Það kom honum meira á óvart að Árni og Geir voru edrú en að Guðni væri það ekki. „Fínt. Þá er best að við vindum okkur í þetta. Byrjum á húsbóndanum. Það var hann sem kom að honum, var það ekki?“ Katrín kinkaði kolli. TMM 2004 • 1 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.