Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Síða 49

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Síða 49
Línudans af þínum undirsátum eða hvað?“ Karl leit á hana, sár, en fullur fyrirgefningar. „Við tölum ekki um undir- og yfirmenn í þessum bransa,“ útskýrði hann þolinmóður, „við erum öll jöfh þegar upp er stað- ið. Bara mislangt á veg komin. Og Mikael er - var heiðursgestur hér í kvöld. Við hjónin eigum honum allt að þakka.“ Það vottaði fyrir klökkva í röddinni, sem virtist skyndilega við það að bresta en slapp fyrir horn þegar Karl saug uppí nefið og ræskti sig. „Og öll hin líka. Allt að þakka,“ endurtók hann. „Okkur Helgu fannst bara tilvalið að þau fengju að kynnast honum aðeins. Og ég bara skil ekki, bara skil alls ekki hver hefur getað - hver hefur - hvers- vegna...“ röddin brast aftur og hann gróf andlitið í höndum sér. „Fyrirgefðu,“ sagði hann stuttu síðar, á innsoginu, „fyrirgefðu, en þetta er bara svo - svo ...“ Stefán andvarpaði aftur, upphátt í þetta skiptið, en Karl virtist ekki taka eftir því. Bara svo ótrúlegt, botn- aði Stefán í huganum, svo óraunverulegt, svo fáránlegt. En stað- reynd engu að síður. Hann leit á Katrínu, sem sýndi engin svip- brigði. „Þú sást hnífinn, er það ekki?“ spurði hann varlega. Karl umlaði eitthvað sem hann tók fyrir samþykki. „Og? Kannastu við grip- inn?“ „Þetta er einn af eldhúshnífunum okkar,“ muldraði Karl. „Sá stærsti úr settinu sem stendur á eldhúsbekknum.“ Árni birtist í stofudyrunum og leit undrandi í kringum sig. Stef- án benti honum að setjast. „Þetta er Árni,“ útskýrði hann fyrir úttauguðum og svefnvana gestgjafanum, „hann er líka rannsóknarlögreglumaður og hann er að velta því fýrir sér hversvegna þetta borð sem við sitjum við er hérna alveg uppvið vegg, sófasettið allt útí horninu hinumegin og ekkert þar á milli. Ég var reyndar að velta því fýrir mér sjálfur líka. Segðu mér, Karl, hvernig fara svona pepp-partí fram? Eða réttara sagt, hvernig fór þetta pepp-partí fram? Var eitthvað öðruvísi en venjulega? Einhver illindi í gangi milli Mikaels og einhvers ann- ars?“ Karl hikaði áður en hann hristi höfuðið, ekki lengi, en nóg til að þau tóku eftir því, öll þrjú. „Hvað með blíðuhót þá,“ hélt Stefán áfram, „sem gætu kannski skýrt afhverju hann var nakinn þarna á kamrinum?“ Og jafnvel líka TMM 2004 • 1 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.