Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 55
Línudans
antísportistanum Árna, „hann er líka skaphundur.11 Hann leit aft-
ur á Katrínu og brosti. „Og ekki gera lítið úr Stóns, Marinó er upp-
reisnargjarn skaphundur, hálfgerður Strít fæting man, reyndar,
sem hikar ekki við að búa til vandræði og nýtur þess. Og það sem
meira er, hann er hornamaður. í hægra horninu.11 Katrín kinkaði
kolli, hægt og rólega.
„Sem þýðir?11 spurði Árni.
„Sem þýðir að hann er örvhentur,11 sagði Stefán. „Það er svosem
ekki algilt, en Marinó er það, semsagt.11 Það var komið að Árna að
kveikja á perunni.
„Og hver sem gerði þetta hlýtur að hafa stungið með vinstri, því
ekki komst hann afturfyrir kallinn, sitjandi á klósettinu. Bingó.11
Þeir brostu framaní Katrínu og biðu eftir klappinu á bakið en
það lét á sér standa. Hún horfði bara á þá og hristi höfuðið.
„Marinó er nautsterkur, örvhentur skaphundur,11 sagði hún,
„það er alveg rétt. Og þessvegna alveg upplagður blóraböggull fyrir
einhvern sem þekkir eitthvað aðeins til hans. En hann drap engan
hér í kvöld.11
„Hversvegna segirðu það?11 spurði Árni tortrygginn.
„Afþví að hann gat það ekki,11 sagði hún, „Geir var með það al-
veg á hreinu að þetta var ein, ákveðin stunga. Ekkert hik, ekkert juð
- bara ein, kraftmikil stunga.11
„Og?“ Katrín fórnaði höndum.
„Guð minn almáttugur, strákar, hvað er eiginlega í gangi hérna?
Stóns og Búlgakov og andskotinn sjálfur og hvað veit ég, það mætti
halda að þið hefðuð ekki lesið neitt nema Agötu Kristí uppá síð-
kastið. Þið hafið að minnsta kosti ekki lesið íþróttasíðurnar.
Marinó meiddist í síðasta leik. Viðbeinsbrotnaði,11 útskýrði hún,
„vinstramegin.11
„En,“ sagði Árni, andlitið eitt spurningamerki, „en hann er ekki
í neinu gifsi?11 Stefán rumdi.
„Það er ekki sett neitt gifs á viðbeinsbrot,11 urraði hann á Árna,
argur útí sjálfan sig. „Ég rak augun í þetta í einhverju blaðinu um
daginn,11 muldraði hann, „var búinn að gleyma því.“ Katrín kink-
aði kolli.
„Jamm. Og það er ekki það eina sem þú ert búinn að gleyma.
Mætti halda að þú værir kominn með alzheimer greyið rnitt.11 Stef-
TMM 2004 • 1
53