Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Blaðsíða 90
Silja Aðalsteinsdóttir
og aðgangur er ókeypis. Þeir sem vilja koma sér á framfæri hringi í síma
659 3313. Ættu menningarvinir að tékka reglulega á Jóni forseta því þar
eru margvíslegar menningaruppákomur aðrar í bígerð.
Kvikmyndir framundan
Kvikmyndaáhugamenn sem ekki hafa lært að fara á sýningar Kvikmynda-
safns íslands í Bæjarbíói í Hafnarfirði ættu að taka í hnakkadrambið á sér
og drífa sig. Sýningar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20 og laugardögum kl.
16. í vetur hefur Japan verið ein uppspretta og var fyrsta mynd ársins
2004 Yojimbo eða Lífvörðurinn eftir Akira Kurosawa (frá 1961). Það var
satt að segja merkilegt að sjá hvað tónninn í þessari háðslegu samúraja-
mynd er keimlíkur tóninum í fýndnustu íslendingasögunum, til dæmis
Fóstbræðra sögu.
Þegar þessi skrif koma út á enn eftir að sýna einar fimm japanskar bíó-
myndir, Seppuko eftir Masaki Kobayashi (1962, 3. og 6. mars), Suona no
onna eða Konuna í sandinum eftir Hiroshi Teshigahara (1964, 16. og 20.
mars), Rauðskegg eftir Kurosawa (Akahige frá 1965, 30. mars og 3. apríl)
og fyrstu litmyndina hans, Dodesukaden (1970, 20. og 24. apríl), og loks
Ugetsu monogatari (1953) eftir Kenji Mizoguschi 25. og 29. maí. Þess má
geta að Mizoguschi var á dagskrá í London í byrjun árs þar sem nokkrar
myndir hans voru sýndar og vakin athygli á honum sem listfengasta
kvikmyndaleikstjóra Japana - þó að Kurosawa sé þekktari á Vestur-
löndum. Ugetsu monogatari er þekktasta kvikmynd Mizoguschis og
þykir einnig sú fegursta.
Auk þess hefur safnið sýnt bíómyndir Þráins Bertelsonar og á eftir
Dalalíf (9. og 13. mars) og Löggulíf (11. og 15. maí).
Ekki er allt búið enn í Hafnarfirði því Svona er lífið eftir Jan Troell
(1966) verður sýnd 23. og 27. mars og 18. og 22. maí verður sýnd Ole dole
dojfeftir sama. Einnig fáum við að smakka á Franco Zeffirelli því Otello
hans verður sýndur 6. og 10. apríl. 13. og 17. apríl koma svo tvær frá-
bærar stuttar bíómyndir, Simón del desierto eða Símon í eyðimörkinni
eftir Luis Buhuel og Une historie immortelle, Ódauðleg saga eftir Orson
Welles þar sem hann leikur sjálfur á móti frönsku dívunni Jeanne Moreau
í mynd sem byggir á smásögu eftir Karen Blixen.
Myndlist
Stór sýning á flúxusverkum frá 1962-1994 stendur yfir í Listasafni íslands
til 14. mars. Flúxuslistamenn höfnuðu ríkjandi listhugmyndum á sjö-
88
TMM 2004 • 1