Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 101
Jónas Sen
Ár í lífi eiturpenna
Ég varð dálítið hissa þegar Islensku tónlistarverðlaunin voru afhent síð-
ast. Fyrir það fyrsta var undarlegt að Sinfóníuhljómsveit íslands skyldi
vera valin flytjandi ársins ásamt konsertmeisturunum Guðnýju Guð-
mundsdóttur og Sigrúnu Eðvaldsdóttur. Nú man ég ekki eftir neinu sér-
stöku sem Sigrún afrekaði, og frábær geisladiskur Guðnýjar kom ekki út
í fyrra heldur árið þar á undan. Ekki man ég heldur effir að Sinfónían
sjálf hafi gert eitthvað óvanalega markvert. Hún átti hvorki stórafmæli né
stóð á tímamótum og, ef marka má umfjöllun Sigfríðar Björnsdóttur í
DV, hélt hún sig aðallega við hefðbundin verkefni af topp tíu listanum.
Að vísu komst hljómsveitin í fréttirnar þegar Reykjavíkurborg ætlaði
allt í einu að afneita henni, sennilega vegna þess að hún heitir Sinfóníu-
hljómsveit íslands en ekki Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur. Launamál
konsertmeistaranna voru sömuleiðis fréttaefni. Ef þetta tvennt var
ástæðan þá voru verðlaunin fyrst og fremst dulbúin stuðningsyfirlýsing
við launakröfur tónlistarmanna og við tilvist Sinfóníunnar almennt, ekki
viðurkenning fyrir vel unnin störf, hugmyndaauðgi og frumleika.
Ekki var síður undarlegt að veita Kammersveit Reykjavíkur verðlaun
fyrir besta geisladisk ársins. Það er fátt frumlegt við diskinn; hann er að
vísu vandaður en samt lítið merkilegri en ótal geisladiskar annarra flytj-
enda með sömu tónlist. Hver hefur ekki heyrt Brandenborgarkonserta
Bachs hundrað sinnum? Nei, að mínu mati hefði Hafliði Hallgrímsson
átt að fá verðlaunin í þessum flokki; Passían hans er ein fegursta og seið-
magnaðasta trúartónsmíð sem heyrst hefur í langan tíma og ég veit um
marga sem urðu fyrir trúarlegri reynslu er hún var frumflutt.
Verst af öllu við tónlistarverðlaunaafhendinguna var samt Gísli Mar-
teinn með alla sína fimmaurabrandara, enda gerði Spaugstofan óspart
grín að honum helgina á eftir. Hann var eins og athyglissjúkur krakki sem
neitar að fara að sofa og er öllum til ama í fínu kvöldverðarboði. Þórólfur
borgarstjóri hefði líka átt að fara snemma í rúmið, en athugasemd hans
TMM 2004 ■ 1
99