Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 122

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 122
Kristján Jöhann Jónsson þroskasögu. Sigþrúður bendir á að saga Halldórs af bernsku sinni dragi allt frá fyrstu blaðsíðu upp mynd af fullmótuðum einstaklingi, sögumað- ur og aðalpersóna séu sami maðurinn og hann sé hið áttræða Nóbels- skáld. Um þetta er hann alveg meðvitaður sjálfur eins og hann segir í Úngur eg var. „Sögu sín sjálfs getur einginn sagt, hún verður því meira þrugl sem þú leggur meira á þig til að vera sannsögull.“10 Þeirrar sjálfstæðu og tortryggnu túlkunarfræði sem einkennir grein Sigþrúðar sakna ég í bók Hannesar sem tekur sjálfslýsingar Halldórs gild- ar eins og í þeim felist einhvers konar hlutlægur sannleikur og leggur þær til grundvallar frásögn sinni af æskuárum Halldórs. Einstaklingur og samfélag Hinn ungi snillingur byrjar smám saman að fara af bæ og það verður fljótlega ljóst utan sveitar að hann sker sig úr á flestum sviðum. Hann fer í skóla og hafnar honum að því er virðist á þeim forsendum einum að skólinn sé ekki nógu góður fyrir hann. Ekki verður þess vart að höfund- ur ævisögunnar leggi neinn sérstakan skilning í það hvers vegna við- fangsefni hans sker sig úr sínum hópi og telur skólann ekki samboðinn sér. Honum verður tíðrætt um augnatillit kvenna og virðist að öðru jöfnu telja þau til tíðinda en kannski er það ekki fréttnæmt að sextán ára strákar og stelpur skiptist á augnaráðum og leiðist heim eftir götu þegar orðið er dimmt. Hannes kemur víða að tilsvörum sem gætu bent til þess að Laxness hafí talið sig hátt yfir samborgarana hafinn. Hvergi er bent á hugmyndir þessa tímabils um mikilmennið, möguleika þess og siðferði. Annar og þriðji áratugur aldarinnar var nýrómantískur og þó að ofurmennishug- mynd Nietzsche hafi verið látin svífa yfir fullmörgum vötnum í skrifum manna um þessa tíma er tæplega heppilegt að horfa fram hjá þeim miklu kenningum um „manninn“ sem settu mark sitt á upphaf aldarinnar. Flestir lista- og menntamenn voru á einhvern hátt að máta sig við þær, leika listamannshlutverk sín. Um þetta fjallar bók Halldórs Guðmunds- sonar Loksins, loksins" meðal annars og ég hafði búist við að stjórnmála- fræðingur og hugmyndasögufræðingur gæti fýllt þá mynd og haldið áfram þar sem henni sleppti. Halldór fer utan og leggur hart að sér enda markmiðið að sigra heim- inn eða farast ella. í annarri utanferð sinni, 1921, fór hann til Þýskalands og Austurríkis og rústir þýskra borga höfðu sterk áhrif á hann.12 Hannes ræðir það ekki heldur slær því föstu að ástarsorg hafi verið meginástæð- an fýrir því að Halldór gerðist kaþólskur, ákvað að verða munkur og snúa 120 TMM 2004 ■ 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.