Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 14

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 14
Þórbergur Þórðarson Margrét. „Ég verð þá víst að rölta með þér,“ sagði ég. „Þú ræður því,“ svaraði Margrét. Þetta var í elsta hluta bæjarins, og nú varð ekki hjá því komist að ráfa nokkra stund um hann og góna á byggingarlist og gatna- gerð þeirra tíma. í þessu stauti stóðum við, ásamt góninu í Stefánskirkju, frá kl. 5 til 9 um kvöldið. Þá er orðið dimmt þar í landi. Morguninn eftir æddum við snemma á fætur, í stað þess að sofa út undir hristinginn til Búdapest sem hefjast skyldi kl. 4.35 þá um daginn. Fyrst varð að fara í banka til þess að fá skipt peningum og þaðan í aðal- banka til að sannprófa að rétt væri skipt. Svo var rásað til kirkjunnar í brennandi hita, ennþá meiri en daginn áður. Allt stóð á þani. Og þegar til kirkjunnar kom var hún harðlæst nema einar dyr sem stóðu í hálfa gátt svo að við gátum smeygt hausnum inn milli stafs og hurðar og þannig séð gripinn innan nokkurn veginn. Margrét hætti við að verða eftir í Vín. Henni fannst Vínarborg fallegur staður og verka mjög vel á sig. Nálægt Elítu var ein krá þar sem fólk kom og tók sér forfrískingu öls og víns og matar. Þar komum við nokkrum sinnum og svelgdum niður um vor spísirör þeirra annarlegu matarréttum og uppfrískandi bjór, sem gerist fólksins herra og böðull í þeim miklu hitum sem það má hér út standa. Heitt var við Rín, heitara þó í Vín, en heitust er hin suðræna silki- hlín. Þarna í kránni rákumst við á einn enskan, aldraðan lögfræðing, einn sérdeilis penan og þægilegan mann. Hann hafði haft sína búsetu nokkur ár í Vín og var viðloðandi gestur á kránni. Hann gaf sig á tal við okkur. Hann skal hafa haft sitt lossamenti mjög nálægt kránni, því að hann kom þangað hverja ferðina á fætur annarri og fékk sér eitt vænt staup vfns í hvert sinn og gekk svo út. Þannig sýndist hann halda sér mjúkum allan daginn. Einn gang var hans ektakvinna í fylgd með honum. Hún bauð af sér góðan þokka og var sýnu yngri en maður hennar. Ekki vissi ég um hennar þjóðerni. Nú fór að nálgast stóru stundina, máski úrslitastund lífs eður dauða, því að enn var skafheiður himinn og hiti mun meiri en tvo undanfarna daga, þó að hann virtist þá svo mikill að varla væri hugsanlegt á hann að bæta annars staðar en suður í hitabeltinu. Við fengum okkur bíl og ókum með okkar fátæklega hafurtask út á járnbrautarstöðina. Þar lentum við í þvílíkri þvælu, þvargi og strefi að við vorum nærri niðurlotum þegar við komumst loks inn í lestarklefann. Svo byrjaði skakið til Búdapest. Lestin lét illa á teinunum. Við hrist- umst mikið. Hitasvækjan næstum óþolandi. Gusturinn sem kom inn um opna lestargluggana svo heitur að hann veitti enga svölun. Allir gangar fullir af fólki svo að varla var hægt að hreyfa sig út úr klefunum. Og hit- 12 TMM 2004 ■ 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.