Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 17

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 17
Bréf frá Þórbergi Þórðarsyni símanum prófessor í matematík. Ég kvaðst vera einn munaðarlaus ís- lendingur, staddur hér í ókunnri borg, á leið til þingsins í Soffíu. Mig langaði til að tala við hann á stöðvunum, en það væri löng leið þangað, samkvæmt upplýsingum Jóns Helgasonar. Prófessorinn sagðist strax skyldi senda pilt heim til mín á hótelið. Tuttugu mínútum seinna var pilturinn kominn. Hann var laglegur í andliti, allur vel á sig kominn og óvenjulega viðfelldinn, talaði dálítið Esperanto, var að læra. Aðalatriði erindisins á esperantostöðvarnar var að leitast fyrir hvort ekki mundi neinn vegur að útvega okkur ódýrari vistarveru. Fyrst var gengið, svo farið í sporvagni og síðan gengin löng leið. Hitinn meiri en nokkru sinni áður, hreint helvíti. Okkur var tekið elskulega á esperantostöðvunum. Við sátum þar nokkurn tíma. En þar voru annir, því að fleiri ferðalangar voru þangað komnir upp á fyrirgreiðslur. Mér var ekki gefin sú frekja að fara að nudda í prófessornum um ódýrari íbúð. Ég sá að hann var þreyttur og hafði í mörgu að snúast. Við kvöddum og héldum heim til Jóns Helgasonar og pilturinn með okkur, og nú hafði eldurinn ennþá vaxið, því að nú stóð sól rétt í hádegisstað. Og nú kom sá stóri vendipunktur: Margrét sagðist ekki treysta sér til að fara lengra suður vegna hitans. Við yrðum að snúa hér við til Kaup- mannahafnar. Ég vildi ekki stofna lífi hennar í hættu og sagði að það væri best. Þá var það næst að fara á járnbrautarstöðina og panta farið. Það var óraleið og hitinn lét sig það engu skipta. Þegar klukkan var 35 mínútur yfir tólf lagði Margrét af stað til járnbrautarstöðvarinnar og pilturinn með henni. Þau gengu alla leiðina. Ég beið heima á hótelinu og las Aandemateríalisationer, þorði ekki að víkja eitt andartak frá símanum, bjóst þá og þegar við upphringingu: Margrét hefði fallið í yfirlið eða annað verra. Það eru til slög í útlöndum sem heita hitaslög, eins og þú munt kannast við. Og nú seiglaðist tíminn áfram með hraða ánamaðks- ins. Klukkan varð eitt, svo tvö, mjakaðist niður í hálfþrjú, streittist við að komast upp á þrjú. Ég fór að ganga um gólf, skeilti mér niður á milli og las Aandemateríalisationer, og seint og síðarmeir varð hún hálf fjögur. Þetta er farið að verða skrýtið. Kannski hafa þeir ekki fundið símanúm- erið. En ég hafði ótakmarkað traust á piltinum. Hann hlýtur að hafa fundið númerið. Nú vantar hana tíu mínútur í fjögur. Ég fer að hlusta. Fótatak úti á ganginum, frá lyftunni. Það er ekki hennar fótatak. Aftur fótatak. Ekki hennar. Nú heyrðist skörulegt fótatak, og klukkan nákvæm- lega fjögur brunaði Margrét inn í Superluxó, alls ekki hitaslagsleg í fasi þó að færi fótgangandi heim frá járnbrautarstöðinni. „Hvað er nú í fréttum?11 TMM 2004 • 3 15
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.