Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Síða 59

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Síða 59
Tilgangur. Komdu. Himinn. saman. Þeir fara saman í gegnum þessa bók feðgarnir, og Þráni tekst að búa til tilfinningu fyrir lífi þeirra saman í mörgu ósögðu. Samt er í sjálfu sér ekkert dregið undan: drykkjuskap föðurins er lýst án þess að dómar séu lagðir upp í hendurnar á lesanda eða einu sinni það sé alltaf skelfi- legt, enda á hann til undursamlega hluti undir áhrifum, eins og þegar hann fer með drenginn til að kaupa handa honum hjól, þótt líka geti keyrt um þverbak eins og þegar drykkjusjúklingur gerist um hríð heim- ilisvinur með tilheyrandi dropadrykkju... Af þessum þremur höfundum gefur Þráinn sér bestan tíma til að leyfa litlum og merkilegum atvikum bernskunnar að njóta sín, hann kann þá list að láta frásögnina anda, kann að láta lesandann hreiðra um sig í hæg- indum hins mjúkláta stíls og líða áfram á öldum frásagnarinnar og heyra fyrir sér þjóðkunna röddina. Þrátt fyrir allt flandrið á þeim feðgum er frásögn Þráins bundin þrengra sviði en hinna tveggja - en verður fyrir vikið á einhvern undarlegan hátt breiðari lýsing og nær að öðlast betur en hinar bækurnar samfélagslega skírskotun. Hann dvelur lengur við atvik bernskunnar og dregur eins og í leiðinni upp mynd af íslandi eftir- stríðsáranna. Hann er meira að segja ófeiminn við að lýsa dæmigerðum minningum sem heilu kynslóðirnar eiga sameiginlegar - barnakarnívali þrjúbíósins eða ráðvilltu borgarbarninu í sveit - en hið sterka sjálf drengsins sem er vitundarmiðja frásagnarinnar bjargar henni frá því að verða einskær stikkorð á ódýra nostalgíu. Við finnum fyrir þessum dreng í hverri setningu, viðkvæmni hans, klaufaskap, mislyndi, umkomuleysi og staðfestu. Þráinn skrifar yfirlætislausan og ljósan stíl og notar mikið greinaskil og bil og sögulega nútíð. Allt þetta gerir að verkum að það er rúmt um lýsingarnar, ró ríkir yfir textanum. Höfundurinn virðist skrifa eina setningu í einu og þagna á milli, liggur við að maður sjái hann klóra sér í hökunni milli setninga. Hér er dæmi nánast af handahófi - svona kveður hann móður sína undir lok bókarinnar eftir að hafa minnst föður síns: Mamma dó 1994 og hafði þá liðið sæmilega síðustu 25 árin. Hún var löngu flutt af Kleppi og komin á geðdeild í Hátúni sem var sjónarmun heimilislegri en geð- fangabúðirnar á Kleppi. Ég heimsótti hana oft og stundum var meira að segja hægt að tala hana inn á að koma í heimsókn til mín þótt hún væri stressuð yfir því að komast til baka í tæka tíð því að hún hafði meðal annars það trúnaðarstarf að útdeila sígarettum til þeirra sjúklinga á deildinni sem höfðu það fyrir afþreyingu að reykja. Hún var akkúratmanneskja og vildi ekki að það væri neitt upp á sig að klaga. Ég kom of seint morguninn sem hún dó. Hún var búin að skilja við. Ég kyssti á ennið á líkinu. Ég hafði aldrei áður séð dána manneskju. TMM 2004 • 3 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.