Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 61
Tilgangur. Komdu. Himinn. markalaust langlundargeð þar til hún kynnist rauðhærðum sjómanni og ástir takast með þeim þótt hún sé að vísu áfram í hjónabandi sínu og sjó- maðurinn haldi til Ameríku. Hin sagan er um móðurlausan dreng sem búið hefur einn með föður sínum um hríð en vaknar einn daginn við það að ný kona er komin á heimilið og bregst við með því að þagna. Sagan greinir síðan frá því hvernig stjúpunni tekst smám saman og með mikilli hægð að vinna drenginn á sitt band. Jón Kalman skrifar ljóðrænan texta, enda ljóðskáld, fullan af hugkvæmum myndum og táknum - til dæmis í upphafi bókarinnar þar sem Vogue-skærin gamalkunnu verða honum að tákni sem minnir á augu dr. Eckleburgs í The Great Gatsby og klippa og klippa „en klippa samt ekki neitt, nema hugsanlega þessar minningar" - og smám saman verður til nokkurs konar safn af dúkkulísum sem klipptar eru út úr tímanum. í upphafi fjórða og síðasta hluta bókarinnar er sérkennileg hugleiðing í kringum þrjú orð þar sem við sjáum eitt höf- undareinkenni Jóns Kalmans, hvernig hann fikrar sig hikandi áfram í texta sínum að merkingu, einhverju mikilvægu sem hann langar að segja - gott ef ekki sjálfum kjarna málsins: Fallegt orð, tilgangur, og gott að segja það upphátt meðan jörðin æðir stefnulaus um himingeiminn. Kannski fallegasta orð tungumálsins, ef maður undanskilur komdu. Tilgangur, þylur maður, komdu, og þá er eins og einhver kasti til manns reipi. Ég held fast um ímyndaðan endann, og jörðin æðir áfram. Himinninn dökknar í kringum okkur, það er kvöld, hann lýsist og verður síðan blár, það er dagur. En þessi himinn, bústaður Guðs og þakið yfir tilveru okkar, hann er hvergi til nema kannski í höfðum okkar. Himinninn er bara orð sem við notum yfir óskiljanlega fjarlægð - og þangað stefnum við. Stjörnur blika, hundar gelta, ég segi þessa sögu: þetta er allt af sama meiði. Maður leitar upphafsins og segir sögur á meðan, hugsanlega til þess að gleyma því að það sé ekki til neinn himinn. Ekkert upphaf, enginn endir, einungis hreyfmg og óendanleg fjarlægðin, það er allt. En svo kann það að vera tómur misskiln- ingur, vísindaleg skekkja og þá er sitthvað sem við skiljum ekki ennþá. Þá er enn talsverð óvissa og í skjóli hennar get ég skrifað þessi þrjú orð: Tilgangur. Komdu. Himinn. Sumir kynnu að kalla þetta tilgerðarlegan vaðal - og hefðu jafnvel sitt- hvað til síns máls, enda hægt að segja slíkt hið sama um allan listrænan texta. Og samt er þetta ansi góð lýsing á því sem knýr marga rithöfunda áfram við skriftir. Þeir leita tilgangs í og með skriftum sínum, leita að stað sínum í heiminum: þeir leita samfélags við lesendur, nálægðar, jafnvel líknar, þeir leita líknar af því tagi sem barn sækir til móður - móðurinnar sem er himinninn í líft þess. TMM 2004 • 3 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.