Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Síða 64
Júlían Meldon D’Arcy og Guðmundur Sæmundsson
it like Beckham (2003) fór sigurgöngu. Önnur bresk kvikmynd varð víð-
fræg, Mean Machine (2003), með fyrrverandi fótboltaharðjaxlinn Vinnie
Jones í aðalhlutverki. Bandarískar íþróttakvikmyndir af ýmsu tagi eru
vinsælar á myndbandaleigum landsmanna. í íslensku kvikmyndinni
íslenski draumurinn (2000) er knattspyrna notuð sem aðferð aðalsögu-
hetjunnar til að reyna að nálgast dóttur sína og einnig til að niðurlægja
unnusta fyrrverandi konu sinnar. Og nú eru væntanlegar kvikmyndir þar
sem knattspyrna leikur enn stærra hlutverk, m.a. frá Robert Douglas um
samkynhneigt knattspyrnulið sem keppir við KR á Gay Pride-deginum.
Þá má nefna The Match, dans um knattspyrnuleik milli Hollands og
íslands, sem íslenski dansflokkurinn sýndi s.l. vetur í Borgarleikhúsinu
(Leth 2003). Á bókmenntasviðinu hafa tvær bækur vakið verðskuldaða
athygli, þar sem fótboltinn er númer eitt, tvö og þrjú, Fótboltasögur eftir
Elísabetu Jökulsdóttur (2001) og Fótboltafíkillinn eftir Tryggva Þór Krist-
jánsson (2004).
Því fer fjarri að hér sé um tæmandi upptalningu að ræða. Vafalaust
hafið þið, lesendur góðir, rekist á fjölmörg önnur dæmi þess á síðustu
árum að knattspyrna eða aðrar íþróttir væru notaðar sem veigamikill
þáttur í skáldskap eða öðrum listgreinum. Þetta eru aðeins dæmi sem
okkur koma í hug í fljótu bragði.
íþróttir sem listform
Það má velta fyrir sér tengslum íþrótta og lista frá enn öðru sjónarhorni.
Jón Arnar Magnússon segir í viðtali sem birtist við hann í tímaritinu
Laugdœlingi (Guðmundur Sæmundsson 2004b:21):
Kannski lít ég frekar á mig sem listamann en skemmtikraft, svona svipað og leik-
ara eða tónlistarmann, og legg mest upp úr að reyna að framkvæma það sem ég
er að gera sem best, helst á fullkominn hátt, hvort sem það er stangarstökk, hlaup
eða spjótkast. Samhæfingin og framkvæmdin þarf að vera hárnákvæm. Það má
engu skeika. Til þess þarf ekki aðeins ástandið á manni á keppnisdegi að vera
algjörlega í lagi, heldur verður undirbúningurinn að hafa verið hárnákvæmur og
andlegi þátturinn að vera í toppformi. Þegar þetta gengur allt upp næst toppár-
angur, nautnin við að framkvæma íþróttina verður algjör og þeir sem horfa á og
hafa vit á því sem er að gerast hrífast með, rétt eins og unnendur klassískrar tón-
listar fá gæsahúð niður effir bakinu þegar tónlistarmennirnir á sviðinu sýna snilli
sína.
Skoðum til dæmis markvörslu Gordons Banks þegar hann varði skalla
frá Pele í heimsmeistaraleik Englands og Brasilíu árið 1970. Eða hjólhesta-
62
TMM 2004 • 3