Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 65

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 65
Fyrirgjöf af kantinum spyrnumark Eiðs Guðjohnsen í leik Chelsea gegn Leeds 28. janúar 2003. Eða skallamark Henrik Larsens í leik Svíþjóðar og Búlgaríu á EM í júní 2004. Allt eru þetta dæmi um fullkomlega samhæfða beitingu líkam- legrar og andlegrar snilli og næmi sem halda má fram að veiti fagur- fræðilega upplifun á borð við lýtalausa sýningu á La Bohéme, Svanavatn- inu eða Hamlet. Hvað þetta varðar má líta á íþróttaatvik eða framgöngu íþróttamannsins sem listræna sýningu rétt eins og í öðrum listgreinum og þar með jafngilda sem viðfangsefni fagurfræðilegrar umfjöllunar eða rannsóknar. Að sjá fallega skorað mark í leik getur verið eins mikil fagur- fræðileg unun og að horfa á pas-de-deux í ballet, skoða Picasso á safni, eða hlusta á aríu í óperuhúsi. Leikmaðurinn hefur æff, komið sér í form og undirbúið þennan einstaka atburð í mörg ár. Upplifun leikmanns sem tekst upp á þennan veg er einnig hin sama og upplifun listamannsins sem tekst betur upp en nokkru sinni fyrr. Um þetta segir Jón Arnar í áðurnefndu viðtali: Ánægjutilfinningin er stundum svo mikil og sönn að maður ræður ekkert við sig. Ég hef upplifað þessa frábæru tilfmningu oftar en einu sinni, t.d. þegar ég hef lent í 2. og 3. sæti á heimsmeistara- eða Evrópumeistaramóti, eða þegar ég sigraði í Frakklandi á einu helsta tugþrautarmóti í heiminum. Þá fagnaði ég rosalega, enda upplifði ég þar að allt þetta erfiði og strit margra ára skilaði sér. Allt gekk upp. Elísabet Jökulsdóttir lýsir þessu einnig vel í sögunni „Sigurmarkið“ í Fót- boltasögum: Hann var í upphöfnu ástandi þar sem hann lá á bekknum einsog tilbúinn til flug- taks, liðið hafði sigrað, hann skoraði sigurmarkið og sagði að nú væri viðbúið að honum kæmi ekki dúr á auga í nótt, heldur mundi sjá fýrir sér markið affur og aftur, hvernig hann náði sendingunni, lék á varnarmennina tvo í teignum og negldi boltann í fjærhornið, og hann mundi ekki ráða við hugann frekar en þegar sýður uppúr potti og hann sagði að þótt það væri mest um vert að stjórna hug- anum í fótbolta þá brygðist öll svoleiðis stjórnun á svona stundum sem hann vissi ekki hvort kalla skyldi andvökustundir eða sigurstundir en hugurinn tæki stjórn- ina og sýndi þetta aftur og aftur og sömu tilfmningar losnuðu úr læðingi í hvert sinn og það væri ekki fýrr en undir morgun þegar farið væri að sjóða á heilanum að hann mundi losna úr þessu augnabliki og komast í það næsta þar sem hann lá undir fagnandi félagahrúgunni. Svo lyftist hann allur og ég vissi að það var byrjað og gat ekkert gert nema veifa honum, og olían draup af höndum mér. TMM 2004 • 3 63
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.