Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 74
Júlían Meldon D’Arcy og Guðmundur Sæmundsson að hluti ástæðunnar fyrir vanrækslunni er einmitt skortur á sýn og við- urkenningu. Þorgrímur Þráinsson getur verið gott dæmi um þetta. Flokkun á honum sem „unglingabókahöfundi“ hefur dregið úr mikil- vægi þess að skoða sérstaklega íþróttalega þætti í bókum hans. Hið sama gæti átt við um Grettis sögu Ásmundarsonar, Gísla sögu Súrssonar eða Egils sögu Skallagrímssonar, jafnvel Brennu-Njáls sögu (íslendinga sögur 1985 - Fyrra bindi). Þær eru í augum íslenskra bókmenntafræðinga fyrst og fremst íslendingasögur. Þar með eigum við erfiðara með að átta okkur á því að þær eru ekki síður merkilegar sem íþróttabókmenntir frá mið- öldum. í öðru lagi þurfum við að taka næsta skref, sem er að styrkja grundvöll fræðigreinarinnar með nákvæmum skilgreiningum og rannsóknum á einstökum bókmenntaverkum eða höfundum. Með því móti reynum við að öðlast yfírsýn yfir sviðið. / þriðja lagi munu slíkar rannsóknir leiða til þess að smám saman verði til gagnrýnin, fræðileg umgjörð sem nær yfir íslenskar íþróttabók- menntir í heild. Til að byrja með þurfum við kannski að notast við þær kenningar, hugtök og skilgreiningar sem bandarískar rannsóknir og fræðileg skrif um íþróttabókmenntir hafa fært okkur, en síðar meir verður áreiðanlega til fræðaumhverfi sem fellur betur að þeim efnivið sem rannsaka þarf á íslandi. Rannsóknir á íþróttabókmenntum gætu sem hægast tengst rann- sóknum á íþróttamálfari, þ. e. málfari íþróttamanna, þjálfara, íþrótta- fréttamanna, íþróttakennara o.fl. þegar þeir fjalla um íþróttir. Slíkar rannsóknir eru afar stutt komnar og þyrfti þar að ráða bót á. Einnig þarf að skoða áhrif íþrótta á almennt málfar í gegnum málsöguna, svo sem með orðatiltækjum, orðtökum, málsháttum, ferskeytlum og almennu myndmáli. Tengsl íþrótta og lista, annarra en bókmennta, eru enn eitt verðugt rannsóknarsviðið, t.d. höggmyndalist og íþróttir, tónlist og íþróttir, leiklist og íþróttir o.s.frv. í þessu sambandi má til dæmis nefna The Match, sem áður var getið, og „loftfÍmleikaútgáfuna“ af Rómeó og Júlíu sem Vesturport setti upp í fyrravetur (Shakespeare 2002). íþróttafræðasetur KHÍ á Laugarvatni er háskólastofnun á vegum Kennaraháskóla íslands. Þar hefur farið fram öflug kennsla og verið stundaðar lifandi rannsóknir á sviði líffærafræði, lífeðlisfræði og lífefna- fræði, auk þjálffræði, heilsufræði og iðkunar íþróttagreina. Fleiri tengdar greinar eru að vinna sér sess þar, svo sem íþróttasálfræði, íþróttasaga og íþróttafélagsfræði. Þess vegna væri afskaplega vel við hæfi að frumkvæði til að koma upp alhliða aðstöðu eða miðstöð rannsókna á tengslum menningar (þ.e. bókmennta og annarra listgreina) og íþrótta kæmi frá 72 TMM 2004 • 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.