Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 102
Menningarvettvangurinn Grasið á gröfunum vex jafnt upp af líkama fávitans og spekingsins öreigans og auðkýfingsins og fer allt jafnvel í maga kanínanna í kirkjugarðinum." Ljóð eru vinsæl um þessar mundir eins og sjá má á þessu heíti þar sem viðtal er við ljóðskáld um stærstu ljóðahátíð í heimi og ádeilugrein um ljóðagerð - fyrir utan öll ljóðin. Skáldaatið á Menningarnótt í sumar troðfyllti líka Tjarnarbíó og var gerður góður rómur að þó að ekki væru allir klárir á því allan tímann hvað verið var að gera. Það verður gaman að fara aftur næstu Menningarnótt því að atið verður örugglega enn betur heppnað þá. Sumarlesningin Léttmeti var mest áberandi hjá bókaútgáfum í sumar eins og vera ber; þó braut Bjartur blað í sögu bókaútgáfu með því að gefa út þýðingu Sveinbjarnar Egils- sonar á sjálfri Ódysseifskviðu í kilju handa söguþyrstum íslendingum. Hafa þeir eflaust fengið hugmyndina þegar þeir fréttu af kvikmyndinni um Tróju sem skartar fögrum konum en einkum þó fjölda íturvaxinna karlmanna. Ódysseifskviða gerist eftir að Trójustríði lýkur og fjallar um heimför kappans Ódysseifs um ævintýralegar slóðir Miðjarðarhafsins og alla leið í dauðaheim Hadesar. Hún lýsir guðlegum galdrakerlingum og íðilfögrum prinsessum, fram- hjáhaldi guða og trygglyndi hunda, skrímslum og vofum, baráttu hetja og skúrka sem að lokum hljóta makleg málagjöld, eins og segir í orðsendingu frá útgáfunni. Þýðing Sveinbjarnar kom fyrst á prent á árunum Í829-1840, í þetta sinn fýlgir eftirmáli umsjónarmanns útgáfunnar, Svavars Hrafns Svavarssonar, nafnaskrár, skýringar og kort sem sýnir hrakningar Ódysseifs um Miðjarðarhafið. Talandi um fornar sögur og kvikmyndun þeirra skrifar Guðni Elísson glæsi- lega grein í minningarritið um Matthías Viðar Sæmundsson, Engil tímans (JPV- útgáfa), um pínu og lausn frelsarans í tilefni af umdeildri kvikmynd Mels Gibson um efnið. Allir kunna einhvern graut í guðspjöllunum þannig að greinin verður aldrei ofurþung þó að hún vísi ótæpilega í heimildir. Reyndar verða heimildirnar sem nýjar í meðferð hans, allt í einu sér maður hluti í guðspjöll- unum sem maður hafði aldrei tekið eftir áður. Og umfjöllun hans um kristin- dóminn, sögu hans og einkenni, er sannkallaður „augnaopnari“. Svona á að skrifa um guðfræðileg efni, og ég skora á alla, leika og lærða, að lesa þessa grein, hvort sem þeir hafa séð kvikmynd Gibsons eður ei. Af glæpasögum sumarsins hafði ég álíka mikið yndi af Vetrardrottningu Boris Akúnín (MM), Villibirtu Lizu Marklund (Ari) og Kvenspæjarastofu númer eitt eftir Alexander McCall Smith (MM). Sú síðasta er þó vissulega sérstæðust, því þótt maður sé ekki heimavanur í Sankti Pétursborg um aldamótin 1900, þar sem Fandorin ríkisráð skyggnir undirheima, er heimur hennar ekki líkt því eins 100 TMM 2004 • 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.