Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Síða 107
Menningarvettvangurinn
sem dreifa sér um eyðimörk og sópa sandi í litlar hrúgur sem eyðast jafnharðan.
„Það heitir kleppsvinna á íslensku," sagði förunautur minn. Mjúkt sandhljóðið
blandast sellótónunum úr næsta klefa svo úr verður sérkennilegt tónverk.
í september heíjast yfirlitssýningar á verkum tveggja frábærra listamanna í
stóru söfnunum í Reykjavík. Á Kjarvalsstöðum verður opnuð fyrsta yfir-
litssýning á verkum Rögnu Róbertsdóttur en Guðmundu Andrésdóttur í Lista-
safni íslands. Guðmunda var einn helsti fulltrúi abstraktslistar á landinu á síð-
ustu öld. Hún lést 2002 og arfleiddi Listasafnið að hluta verkanna sem hún lét
eftir sig og er það tilefni sýningarinnar.
Málverk halda áfram að vera nokkurn veginn eins öld af öld, ef ekkert kemur
fyrir þau, en mörg verk Rögnu eru sköpuð á sýningarstað úr vikri eða öðru efni
sem hún kastar á límborinn vegg og síðan eru þau skröpuð af í sýningarlok. Þá
eru eingöngu til ljósmyndir af verkinu og nákvæmar upplýsingar um efnið sem
í það fór þannig að hægt sé að endurgera það, en auðvitað er það ekki satna
verkið sem sett er upp aftur. Reyndar sagði Ragna í viðtali við DV (31.1. 2003) í
tilefni af opnun sýningar í Listasafni íslands að æ erfiðara yrði að endurgera
verkin í nákvæmlega sömu mynd vegna þess hvað hún væri farin að „teikna“
mikið í vikurinn.
Af öðrum stórsýningum haustsins má nefna alþjóðlega textílsýningu sem
hefst á Kjarvalsstöðum 13. nóvember og afmælissýningu Félags íslenskra teikn-
ara í Hafnarhúsinu frá 16. október.
Leikhúsin
Eggert Þorleifsson fékk sem kunnugt er Grímuna fýrir besta leik í aðalkarlhlut-
verki í vor. Vissulega er Eggert karl en verðlaunahlutverkið, Rósalind gamla í
Belgísku Kongó eftir Braga Ólafsson, var kvenhlutverk og hefði verið húmor að
veita honum verðlaunin fyrir bestan leik í aðalkvenhlutverki. Viðbótarhúmor
hefði svo verið að verðlauna Halldóru Geirharðsdóttur fyrir besta leik í aðalkarl-
hlutverki í Don Kíkótal Þetta var einstakt tækifæri til kynusla sem væntanlega
kemur ekki aftur í bráð.
Leikfélag Akureyrar varð fyrst til að kynna vetrarstarfsemina í haust og hana
bæði glæsilega og metnaðarfulla. Nýr leikhússtjóri, Magnús Geir Þórðarson, er
leikhúsáhugafólki vel kunnur því hann hefur verið virkur í leikhúslífinu miklu
lengur en æviárin ættu að segja til um. Nú fær hann að spreyta sig á gamalgrónu
atvinnuleikhúsi í fyrsta sinn og verður gríðarlega spennandi að sjá hvernig tekst
til - og hvort hann vinnur hug og hjörtu hinna stoltu og stundum kaldlyndu
Norðlendinga þegar aðkomumenn eiga í hlut. Fyrsta frumsýning hans er á
Svikum eftir Harold Pinter frá 1978, snjöllu leikriti sem byrjar í lokin og færist
aftur í tímann uns margslungnir þræðirnir hafa allir verið raktir upp. Ég sá
prýðilega sýningu á því í Duchess-leikhúsinu í London snemma á þessu ári
undir stjórn Peters Hall og ekki verður síðra að sjá þau Ingvar E. Sigurðsson,
Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur og Felix Bergsson kljást við ástir og svik fyrir
norðan undir stjórn hinnar ástsælu leikkonu Eddu Heiðrúnar Backman.
TMM 2004 • 3
105