Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Blaðsíða 108
Menningarvettvangurinn
Annar ástsæll leikari, Hilmir Snær Guðnason, leikstýrir nýju verki eftir Krist-
ján Þórð Hrafnsson á Litla sviði Þjóðleikhússins nú í haust. Böndin á milli okkar
segja frá ungri kvikmyndagerðarkonu með stóra drauma sem er tilbúin að leggja
allt undir og ungum leikara sem á bak við ímynd vinsælda og velgengni í mis-
kunnarlausri baráttu við eigin hugsanir og tilfmningar. Spurt er hve langt er
hægt að ganga til að láta að vilja annarrar manneskju áður en maður missir
stjórn á eigin lífi. Leikendur eru ungstjörnurnar Sólveig Arnarsdóttir, Rúnar
Freyr Gíslason, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Friðrik Friðriksson.
Þetta er ein fjögurra frumsýninga í Þjóðleikhúsinu í september og október og
ber þar hæst nýtt leikrit eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur sem Viðar
Eggertsson stýrir og verður frumsýnt á Stóra sviðinu í lok október. Hrafnhildur
vakti stórar vonir um að íslendingar hefðu eignast leikskáld á heimsmælikvarða
þegar fýrsta verk hennar, Ég er meistarinn., sló í gegn hjá Leikfélagi Reykjavíkur
árið 1990. Hún hefur þó flýtt sér hægt síðan, því næsta verk, Hægan Elektra, var
ekki frumsýnt fyrr en áratug seinna, árið 2000. Leikstjóri var þá einnig Viðar
Eggertsson og sýningin þótti frumleg og glæsileg.
Erlendu verkin í haust eru Svört mjólk eftir Rússann Vasílij Sígarjov sem
verður sýnt á Smíðaverkstæðinu undir stjórn Kjartans Ragnarssonar og Nítján-
hundruð eftir Alessandro Baricco sem líka verður sýnt á Smíðaverkstæðinu
undir stjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur. Hvort tveggja forvitnileg verk.
Hjá Leikfélagi Reykjavíkur stýrir María Reyndal Geitinni — eða hver er Sylvía
eftir Edward Albee á Nýja sviði með Sigrúnu Eddu Björnsdóttur og Eggert Þor-
leifssyni í aðalhlutverkum. Viku af október verður svo Héri Hérason (Lapin Lapin)
eftir Coline Serre frumsýndur á Stóra sviðinu undir stjórn Stefáns Jónssonar.
Coline Serre er fædd í Frakklandi 1947, hún er leikkona, rithöfundur og leikstjóri
jafht leiksýninga sem kvikmynda. Ekki spillir að hún er aktífur femínisti.
Fyrsta verk íslenska dansflokksins kemur á fjalirnar í október.
Gleðilegt menningarhaust!
106
TMM 2004 • 3