Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 114
Bókmenntir einkar óvinsæl. Báðir verða þeir sagnauppspretta en þar lýkur eiginlega því sem þeir eiga sameiginlegt. Ekki þarf að dæma Óðinsvéa-Eyvind íyrir sauðaþjófnað af því að danskir skattgreiðendur kjósa ekki aðeins að gefa honum lambasteikina heldur bæta þeir við bjór til að skola henni niður. Eyvindur Jónsson Stormur er harðduglegur og útsjónarsamur þegar kemur að því að hafa peninga út úr félags- og trygginga- kerfinu á íslandi og í Danmörku og lítil er sú matarhola sem hann ekki fmnur. Hann er ungur, hraustur og vinnufær með tvö börn á framfæri en það hvarflar ekki að honum að fá sér launavinnu sem krefst vinnuframlags. Hann reynir það heima á Islandi, vinnur stutt tímabil hér og þar, síðast á lager í Byko og líkir þeirri reynslu við „helvítisvist." Stormur er hins vegar ánægður með danska vel- ferðarkerfið af því að það „... reyndi að létta því fólki róðurinn sem kannski er ekki í stuði til að slíta sér út við brauðstritið.“ (19) IV. Því fer þó fjarri að Stormur vilji að fólk sé húðlatt, sníkjudýr, lifi á annarra vinnu og góðsemd, heimti og taki. Hann hefur stæka fyrirlitningu á svoleiðis pakki og vandar því ekki kveðjurnar. Fólk á að hafa sjálfsvirðingu og reisn eins og hetjurnar í amerískum bíómyndum. „A man’s got to do, what a man’s got to do“ eins og þar stendur. Það hvarflar aldrei að Stormi að hann hafi ekki heilagan rétt til að vera eins latur og honum sýnist og láta aðra um að sjá sér fýrir lífsnauð- synjum og framfæra börnin sem honum þykir vænt um og er góður. Þó að hann áskilji sér þennan „rétt“ fyrir sjálfan sig veit hann ekkert fyrirlitlegra en þá sem gera slíkt hið sama. Það er skemmst frá að segja að yfirleitt er ekkert samband á milli þess sem Stormurinn segir og þess sem hann gerir. Hann ER hins vegar ekki það sem hann GERIR, eins og Sartre hefði haldið fram, heldur það sem hann segist vera. Hann byggir allt sitt líf og veruleika á sögunum sem hann segir en það er ekki vert að vera að reyna að koma orðum hans og gjörðum saman. Nokkuð full- komið samræmi er þó innan hvors um sig. Tvisvar í sögunni rekast sögur/draumur og veruleiki svo hastarlega saman að liggur við stórslysi. Fyrra skiptið er þegar Stormurinn fer með alla fjölskylduna til Bandaríkjanna, fyrir- heitna landsins, allslaus og réttindalaus, og ætlast til að einhver komi og reddi málunum. Enginn gerir það. Hitt skiptið er þegar Stormur gerist rithöfundur. V. Off kemur fram í bókinni að Stormur er aðeins í essinu sínu ef honum tekst að koma sér upp áheyranda, einum eða fleirum, sem sitja, drekka og hlusta hug- fangnir á sögurnar hans. Þær fjalla um dramatíska fjölskyldu hans, drykkfellda, geðveiklaða og fátæka en býsna hugmyndaríka og skapandi í ruglinu miðju. Þær fjalla líka um vini og drykkjubræður Storms og styrkja myndina af honum sem megatöffara, svolítið skuggalegum og tengdum undirheimunum en mun klárari 112 TMM 2004 • 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.