Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 115

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 115
Bókmenntir flestum sem hann þekkir eða „larger than life“. Þetta er heimur sem við þekkjum úr fjöldamenningunni, rokki, kvikmyndum og myndablöðum. Þessum heimi lýsir Stormur í aðalsögu og hliðarsögum af undarlegum mönnum. Hann býr sig til sem persónu í þessum sagnaheimi og honum líkar ekki að vera truflaður eða spurður útúr um sköpunarverk sitt. Sá sem efast um að sögur Storms séu sannar eða fmnst þær ekki áhugaverðar er að hafna Stormi því að persóna hans er ekkert annað en þessar sögur og menn verða að elska þær til að elska hann. Heimur Storms er alfarið búinn til í tungu- málinu og þess vegna neitar hann að tala dönsku og finnst hann nánast deyja þegar hann er sviptur sögum sínum. Hann trúir ekki aðeins á eigin blekkingar, hann verður að gera það því annars er hann ekkert. VI Þegar bókaforlag á íslandi býr til bók um utangarðsmann og biður Storm að stíga fram sem höfund hennar er sagan af Stormi tekin úr höndum hans, hann er ekki lengur höfundur heldur viðfangsefni sinnar eigin sögu. Hann missir fót- anna og verður eins og korktappi í ölduróti markaðs- og upplýsingasamfélags- ins. Saga þess manns sem slær í gegn, sem allir vilja þekkja er meðvituð blekk- ing þar sem menn eru að leika sér að þeirri ómeðvituðu blekkingu eða lífslygi sem aldrei má taka frá meðalmanninum, ef marka má Henrik Ibsen í Villiönd- inni. VII. Það hefur hent mig nokkrum sinnum eftir að ég las Storm Einars Kárasonar að ég hef heyrt um fólk sem er yfirgengilega útsmogið í að svindla á velferðarkerf- inu, sjúga sig fast einhvers staðar og búa um sig og ég hugsa: „Nei sko - þetta er Stormur.“ Fyrir mér er Stormur þannig orðinn tákn eða hugtak. Einn nemenda minna taldi Storm hins vegar einu einlægu og ærlegu manneskjuna í bókinni, hetju sem berðist einn gegn hræsnurum og kerfiskörlum og -kerlingum sem reyna að steypa alla andófsmenn í sama mót. Það verður því að segjast að Eyvindi Jónssyni Stormi er lýst bæði af hlýju, viðurkenningu eða samkennd og gagnrýninni fjarlægð. Hann er drullusokkur en hann er okkar drullusokkur eins og sagt er. Skáldsagan Stormur er að ýmsu leyti eins og hugleiðing um Djöflaeyjuþríleik- inn án þess að vera ffamhald af honum eða græða mikið á því að vera tengd við þá sögu eða átökin út af þeim bókaflokki yfirleitt. Hún býður upp á óteljandi túlkunarmöguleika og ég hika ekki við að telja hana bestu bók Einars Kárasonar hingað til. TMM 2004 • 3 113
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.