Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 126
Tónlist eins og þau kæmu úr aíturendanum á manni sem er nýbúinn að fara í þarma- speglun.“ Eins og við mátti búast olli þessi grein nokkru fjaðrafoki og fáeinum dögum síðar birtist í DV lesendabréf frá bálreiðum manni sem hafði farið á tónleikana og hrifist af þarmaspegluninni. Hann vandaði mér ekki kveðjurnar. Aðrir þökk- uðu mér hins vegar fýrir skrifin og töluðu við mig eins og ég hefði drýgt hetjudáð. Ég hefði þorað að skrifa sannleikann um ruslið sem ratar upp á tón- leikapallinn í krafti styrkja frá opinberum aðilum, tónlist sem allur þorri almennings hatar en enginn dirfist að gagnrýna vegna ótta við að vera talinn menningaróviti. Meira að segja Dr. Gunni óskaði mér til hamingju á bloggsíð- unni sinni. Og ég er aðdáandi Dr. Gunna. Tónlistargagnrýnandi og njósnari Ég held að flestir hljóti að gera sér grein fyrir að nútímatónlist af klassísku gerð- inni er ekkert sérstaklega vinsæl. Samt eru ekki öll nútímaverk leiðinleg; síður en svo. Ég var t.d. nýverið í London og brá mér á tónleika þar sem fjórir píanóleik- arar spiluðu á tvö píanó, en slíkir kvartettar voru mun algengari í gamla daga en þeir eru nú. Á tónleikum kvartettsins var nær eingöngu flutt nútímatónlist og var hún einstaklega aðgengileg. Maður heyrði venjulegar tóntegundir, áheyri- legar laglínur, hrynjandi sem var þægilega lífleg en ekki of flókin; meira að segja djass. Á eftir rabbaði ég við nokkra áheyrendur og einn þeirra sagði: „Mikið er nú gaman að heyra einu sinni nútímatónlist sem maður getur hlustað á!“ Svo sagði hann mér frá bók sem ég ætti að kynna mér og héti The Agony of Modern Music. Þar væri nútímatónlist krufin og raktar ástæður þess að samtímatónskáld væru búin að missa öll tengsl við almenning. The Agony of Modern Music er forvitnileg bók. Hún kom út á sjötta áratug síðustu aldar og er effir Henry Pleasants, tónlistargagnrýnanda sem síðar varð CIA njósnari. í bók sinni blæs Pleasants á það sem oft er sagt, að mörg ár þurfi að líða frá því að tónverk sé frumflutt og þar til sauðheimskur almenningurinn læri að meta það að verðleikum. Hann ræðst á tónskáld samtímans og ber saman hlutverk þeirra núna og í gamla daga. I dag sé ríkjandi það viðhorf að tónskáldin séu snillingar og yfir aðra hafin. Slík ofurmenni telji sig vita betur en aðrir hvers konar menning eigi erindi við almenning. Stjórnvöld styðji við bakið á þeim með styrkjum og starfslaunum með þeim afleiðingum að tónskáldin séu búin að missa öll tengsl við raunveruleikann. Ólíkt tónskáldum fyrri alda þurfi þau ekki lengur að selja list sína, nú geti þau samið tónlist sem enginn skilur án þess að fjármálin haldi fyrir þeim vöku á næturnar. Vissulega vilja tónskáld samtímans veita áheyrendum ánægju, að mati Pleas- ants. Þau eru bara ekki ánægð með að þurfa að semja það sem áheyrendur eru hrifnir af, því það er fyrir neðan virðingu alvarlegra listamanna. Vinsæl tónlist er ekki tekin alvarlega, en Pleasants bendir á að alvarleg tónlist sé ekki heldur vinsæl. Hann segir að þjóðfélagið beri þó virðingu fyrir tónskáldunum vegna 124 TMM 2004 • 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.