Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 50
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis:
Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s.
512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar
Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Roller Derby Ísland er fyrsta og
eina íslenska roller derby deildin
á Íslandi. En hvað er roller derby?
„Roller derby er íþrótt sem spiluð er
á sporöskjulaga velli þar sem fimm
úr hvoru liði eru inná í einu,“ útskýr-
ir Ingibjörg Ingvarsdóttir, formað-
ur almannatengslanefndar í RDÍ, en
keppendur eru allir á hjólaskautum,
með hjálma og hlífar. „Einn úr hvoru
liði er svokallaður sóknarmaður
eða „jammer“, hann er sá eini sem
getur skorað stig með því að skauta
fram hjá andstæðingunum. Restin
af skauturunum eru blokkerar, eða
varnarmenn,“ segir Ingibjörg og út-
skýrir að fjórir varnar menn myndi
vegg. „Þeirra hlutverk er að hjálpa
hlauparanum að komast fram úr
vegg andstæðinganna.“
Að sögn Ingibjargar skiptist
leikurinn upp í tvo þrjátíu mínútna
leikhluta og hver leikhluti skiptist
í fleiri tveggja mínútna lotur, eða
„jams“. „Hver lota byrjar á því að
yfirdómari flautar eitt langt flaut.
Þá byrja sóknarmenn að skauta
fram úr varnarveggjunum. Þegar
sóknarmanni hefur tekist það einu
sinni getur hann farið að skora stig
sem hann gerir með því að fara
aftur fram úr mótherjunum. Hann
fær stig fyrir hvern andstæðing
sem hann kemst löglega fram hjá,“
útskýrir Ingibjörg, og greinilegt
að um mikið fjör er að ræða. Enda
segir Ingibjörg skemmtilegt fyrir
fólk að koma og fylgjast með leikn-
um. „Þó fólk viti ekkert hvað er að
gerast finnst því samt gaman.“
Félagið hefur starfað í að verða
fimm ár og hefur nokkur vöxtur
verið í starfseminni undanfarið. „Í
félaginu eru á fimmta tug en rúm-
lega tuttugu eru virkir á æfingum,
bæði strákar og stelpur,“ segir Ingi-
björg. Þar sem aðeins ein deild er
starfandi á Íslandi eru leikir sjald-
gæfir. Því er það mikill viðburður
innan félagsins að fá nú til lands-
ins lið frá Turku í Finnlandi. „Það
gengur undir nafninu Dirty River
Roller Grrrls,“ segir Ingibjörg.
Þetta er fjórði heimaleikur Ragna-
raka en liðið hefur að auki farið í
eitt keppnisferðalag til Finnlands
og stefnir á að fara til Belgíu í haust.
Leikurinn í dag leggst vel í liðs-
menn. „Það væri gaman að vinna,
en það er algert aukaatriði,“ segir
Ingibjörg glaðlega.
Keppnin fer fram í Hertz-Höllinni
á Seltjarnarnesi kl. 16 í dag. Að-
gangur er 1.000 krónur en ókeypis
er fyrir 12 ára og yngri.
ragnarök takaSt á Við Dirty
riVer roller grrrlS
Eina Roller Derby lið Íslands, Ragnarök, keppir sinn fjórða heimaleik í dag við lið frá Finnlandi. Búast má við miklu fjöri
þegar keppendur þjóta í hringi á hjólaskautum í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Áhorfendur eru velkomnir.
Roller Derby hefur verið æft á Íslandi í fimm ár. Keppnin er lífleg og skemmtileg á að horfa. MynDiR/ingiBJöRg ingVARSDóttiR
Hátt í fimmtíu félagar eru í Roller Derby Ísland en þó nokkur vöxtur hefur verið í
íþróttinni að undanförnu.
Varnarmennirnir þurfa að koma í veg fyrir að sóknarmaður hins liðsins komist
fram úr þeim.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
*skv. verðskrá Levi.com og gengistöflu Íslandsbanka 18.03.
721 HIGH RISE
SKINNY JEANS
kr. 14.990
Aðsniðnar buxur
Mjög háar í mittið
Mikil og sterk teygja
Mjúkar og þægilegar
Danmörk verð frá kr 17.032*
Bretland verð frá kr. 14.467*
1 9 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n