Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 80
| AtvinnA | 19. mars 2016 LAUGARDAGUR26
Langanesbyggð leitar eftir áhugasömum kennurum
Grunnskólinn á Þórshöfn og Tónlistarskóli
Langanesbyggðar óska eftir sérkennara og
kennurum til starfa við skólann næsta skólaár
Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi.
Við leitum að fólki með margþætta reynslu, afbragðs félagsfærni og
hefur mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði
kennarans fá notið sín. Okkur vantar sérkennara, almenna
bekkjarkennara, list og verkgreinakennara, íþróttakennara og
tónlistarkennara við Tónlistarskólann okkar, sem er deild innan
Grunnskólans.
Við leitum að sérkennara sem hefur áhuga á því að móta faglega
stefnu sérkennslunnar við skólann sem byggir á hugmyndafræði hins
einstaklingsmiðaða náms og virkri þátttöku allra í skólastarfinu.
Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í
þróunarstarfi á síðustu árum þar sem lögð hefur verið áhersla á
þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna
lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Skólinn er
framsækinn í námsmati og starf hans eflist ár frá ári. Framundan er
áframhaldandi spennandi skólaþróun. Á vef skólans;
grunnskolinn.com má kynna sér allt það helsta sem snertir
skólastarfið, skólastefnu Langanesbyggðar og námskrá skólans.
Á Þórshöfn er blómstrandi mannlíf, mikil náttúrufegurð, öflugt
íþrótta- og félagsstarf fyrir alla þá sem vilja verða hluti af fjölbreyttri
mannlífsflóru norðlensks sjávarþorps.
Umsóknarfrestur er til 18. apríl og skulu umsóknir sendar rafrænt á
netfangið skolastjori@thorshafnarskoli.is.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Tónlistarskóli Langanesbyggðar
Við óskum eftir áhugasömum tónlistarkennara til starfa sem einnig
er tilbúinn til að vinna á margvíslegan hátt að eflingu tónlistarlífs í
byggðarlaginu.
Alls eru um 30 nemendur sem stunda nám við skólann á ýmis
hljóðfæri; gítar, píanó, blásturshljóðfæri ýmis konar ásamt fleiri
hljóðfærum. Kennslan fer fram á Þórshöfn og einn dag vikunnar er
kennt á Bakkafirði. Tónlistarskólinn á í góðu samstarfi við grunnskóla
byggðarlagsins.
Laun fara eftir kjarasamningum.
Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri
Ingveldur Eiríksdóttir í síma 4681164 eða 8526264.
Í Grunnskóla Þórshafnar eru um 70
nemendur í hæfilega stórum bekkjar-
deildum. Starfsemi skólans einkennist
af kraftmiklu og framsæknu skóla-
starfi. Samhliða skólanum er rekinn
tónlistarskóli og hefð er fyrir öflugu
íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa
skólans.
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi
sveitarfélag með spennandi framtíðar-
möguleika. Á Þórshöfn búa um 400
manns í fjölskylduvænu umhverfi.
Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll
almenn þjónusta er á Þórshöfn. Mikil
uppbygging er framundan með
byggingu nýs leikskóla með tengingu
við Grunnskólann.
Á Þórshöfn er íþróttahús og inni-
sundlaug. Ungemnnafélag Langanes-
byggðar stendur fyrir öflugu
íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið og
fjölbreytt félagslíf. Samgöngur eru
góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar
til Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta
nágrenni eru margar helstu náttúru-
perlur landsins og ótal spennandi
útivistarmöguleikar, s.s. fallegar
gönguleiðir, stang- og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum
aldri, af báðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu. Í samræmi
við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar
eru karlar jafnt sem konur hvött til að
sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
LAUST STARF SKRIFSTOFUMANNESKJU MEÐ
BÓKHALDSREYNSLU
Persónuvernd er sjálfstæð
ríkisstofnun sem annast
eftirlit með framkvæmd
laga nr. 77/2000 um
persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga og
reglna settra samkvæmt
þeim.
Persónuvernd er lítill,
fjölskylduvænn og
samhentur vinnustaður
þar sem starfsmenn
ganga til þeirra verka sem
þörf er á.
HELSTU VERKEFNI: MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Bókhaldsmál: færsla í Oracle,
skráning reikninga og bókun
• Ferðaheimildir, ferðareikningar og
bókun flugs
• Umsýsla tengd Vinnustund.
• Samskipti við þjónustuaðila
• Skráning mála í málaskrá og bókun
erinda
• Frágangur á skjalasafni
• Önnur tilfallandi störf
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Reynsla af almennum skrifstofustörfum,
færslu bókhalds og þekking á notkun
Oracle sem og málaskráningu er kostur
• Staðgóð þekking á íslensku og ensku
• Góð almenn tölvuþekking
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt
viðmót og rík þjónustulund
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í
starfi
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2016. Umsóknir skulu berast á netfangið postur@personuvernd.is merkt
„Umsókn um starf skrifstofumanneskju“. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Helga Þórisdóttir, forstjóri í síma 510-9600, farsíma 844-8386 eða í tölvupósti
helgathoris@personuvernd.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Persónuvernd, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík
www.personuvernd.is
Persónuvernd leitar að ljúfum og dugmiklum starfsmanni með bros á vör til að fást við
ýmis viðfangsefni á áhugaverðum tímum hvað persónuvernd varðar. Starfið heyrir undir
forstjóra og helstu verkefni eru umsýsla rekstrarmála, málaskráning og samskipti við
þjónustuaðila. Um sveigjanlegt starfshlutfall gæti verið að ræða.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
óskar eftir hjúkrunarfræðingi við
Heilsugæsluna Þórshöfn.
Hjúkrunarfræðingur
Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir að ráða
hjúkrunarfræðing í 100% starfshlutfall á Heilsugæslu-
stöðina á Þórshöfn frá 15. apríl eða samkvæmt sam-
komulagi. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2016
Sjá nánar um helstu verkefni og hæfniskröfur inn á
heimasíður HSN, www.hsn.is.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráð-
herra og viðkomandi stéttarfélags.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur
til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki
framangreind skilyrði. Tóbaksnotkun er ekki heimiluð á
vinnutíma innan HSN. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar
upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum
og starfsleyfi.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Halldórsdóttir -
aslaug.halldorsdottir@hsn.is - 4640500/8607736
Bílstjórar / Vélamenn
Gámaþjónustan h/f óskar við eftir meiraprófsbílstjórum til
starfa hjá fyrirtækinu við akstur gámabíla og annarra bíla
fyrirtækisins.
Hæfniskröfur: meirapróf – vagnréttindi kostur – ADR
réttindi kostur.
Einnig óskum eftir því að ráða vélamenn í umhleðslu og
flokkunarstöð fyrirtækisins að Berghellu í Hafnarfirði
viðkomandi þarf að hafa reynslu af vinnuvélum og eru
vinnuvélaréttindi skilyrði meirapróf æskilegt vinnutími er
virka daga 07:00 – 18:00
Leitað er að heilsuhraustum einstaklingum sem eru ekki
yngri en 20 ára.
Um framtíðarstörf er að ræða. Nánari upplýsingar veitir
hannes@gamar.is
Starfsmenn óskast
Steypustöðin ehf. óskar eftir duglegum starfskröftum sem
allra fyrst í eftirfarandi störf:
• Meiraprófsbílstjóri Hafnarfirði:
Meiraprófsbílstjóri óskast á þunnflots og anhydrit
vagn í Hafnarfirði.
• Helluverksmiðja Hafnarfirði:
Hraustur og athugull starfsmaður í framleiðslu og
eftirlit í nýlegri og vel útbúinni verksmiðju.
Um framtíðarstörf er um að ræða.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2016
Umsókum skal skilað til Kjartans Salómonssonar Stöðvar
stjóra í Hafnarfirði á netfangið kjartan@steypustodin.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið
tekin um ráðningu.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is