Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 100

Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 100
„Sauðárkróksbakarí er allt í senn bakarí, veisluþjónusta, gjafavöru- verslun og kaffihús,“ segir eigand- inn og bakarinn Róbert Óttarsson. Í bakaríinu, sem er nýbúið að gera upp, má finna alls kyns kræsingar sem allar eru bakaðar eða búnar til á staðnum. „Við erum stolt af því að vera handverksbakarí og keppumst við að framleiða eigin vöru. Við búum til sultur, salöt, pestó, sætabrauð, brauð og tertur, og ýmislegt fleira,“ segir Róbert. Fjörutíu manns geta setið inni í kaffiteríunni og er bakaríið vin- sælt kaffihús í bænum. Bakaríið er opið alla daga allan ársins hring og yfir sumartímann er mikið um að fólk komi við, bæði íslenskir og erlendir ferðamenn. „Fyrir þremur árum tókum við í gagnið útisvæði þar sem notalegt er að sitja á góðum degi og býður það upp á marga möguleika. Einnig er búið að girða af leik- svæði fyrir börnin sem gerir það að verkum að fjölskyldufólk getur notið þess að staldra við. Meðal þeirra kræsinga sem gestir bakarísins geta gætt sér á má nefna mikið og fjölbreytt úrval af sætabrauði, úrval af góðu brauðmeti, girnilegt smurt brauð og heitar lokur af grillinu. Súpa, pastasalöt, bökur, skyrtwist og ýmislegt fleira sem okkur dettur í hug hverju sinni. Við höfum einn- ig lagt okkur fram við að þjónusta þá sem að vilja sykurminni vörur og hveitilaus brauð.“ Bakaríið á sér langa og farsæla sögu. „Það var stofnað árið 1880 og er því þriðja elsta bakarí landsins, en á þessum tíma hafa eigendurnir aðeins verið átta að mér meðtöld- um,“ segir Róbert sem keypti bak- aríið af föður sínum fyrir tíu árum en sjálfur hefur hann starfað þar í aldarfjórðung. „Sauðárkróksbakarí hefur áunnið sér sess í hugum bæjarbúa og þeir halda tryggð við okkur,“ segir Róbert og býður alla vel- komna til sín alla daga milli klukk- an 7 og 18. Nánari upplýsingar má finna á www.saudarkroksbakari.net. Heimilislegt bakarí í hjarta Skagafjarðar Sauðárkróksbakarí var stofnað árið 1880 og er þriðja elsta bakarí landsins. Það hefur áunnið sér sess í hjarta margra, bæði íbúa Sauðárkróks og ekki síður þeirra fjölmörgu gesta sem þangað sækja. Leiksvæðið er vinsælt meðal barna- fólks. Kræsingarnar eru á hverju strái í fallegu bakaríinu. Sauðárkróksbakarí stendur á besta stað í miðbænum. „Ég reyni að fara norður eins oft og ég get, minnst þrisvar, fjórum sinnum á ári. Þú verður að skilja að Akureyri er höfuðborg Íslands. Nafli alheimsins,“ segir Jón Jósep Snæbjörnsson, eða Jónsi í Svört- um fötum eins og hann er gjarnan kallaður, þegar hann er spurður út í heimabæinn. Jónsi er gegnheill Akureyringur og dregur ekkert úr lýsingunum þegar hann er beðinn um að segja frá töfrum Akureyrar. „Hlíðarfjall er heimahöfn allr- ar skíðaiðkunar á Íslandi, hvorki meira né minna. Þetta er einfald- lega langbesta skíðasvæði á land- inu og þó víðar væri leitað. Við fjölskyldan leggjum mikið á okkur til að komast norður á skíði, helst tvisvar á ári. Þar er hægt að fara á skíði jafnvel fram í júlí. Mínar bestu stundir á ég standandi efst í fjarkanum, teljandi í mig kjark í að fara upp í Strýtuna,“ segir hann. „Það er aðeins einn staður sem kemst nær því að vera í uppá- haldi hjá mér fyrir norðan, fyrir utan skíðabrekkurnar, og það er heima hjá pabba og mömmu. Ég á alla mína fjölskyldu fyrir norð- an, öll mín systkini búa á Akureyri og þar af leiðandi liggja ræturn- ar djúpt. Konan mín gekk í grunn- skóla á Akureyri og í framhalds- skóla, en við kynntumst einmitt í Menntaskólanum á Akureyri, sem vel á minnst er besti menntaskóli á Norðurlöndunum. Við berum því bæði mjög sterkar taugar til bæj- arins og finnst afskaplega gott að komast norður í frí,“ segir Jónsi. Spurður hvað hann ráðleggi þeim, sem ætla sér að heimsækja Akureyri, að skoða og gera, fyrir utan skíðabrekkurnar, segir hann Akureyri paradís fjölskyldufólks. „Það er dásamlegt að fara í sund með krakkana á Akureyri. Sundlaug Eyjafjarðarsveitar við Hrafnagil er til dæmis dásam- leg og algjörlega falin perla. Eftir sundferð þangað er síðan gaman að koma við í Jólahúsinu í leiðinni. Í miðbæ Akureyrar er ótrúlega skemmtilegt að drekka kaffibolla, lesa blöðin og njóta lífsins. Akur- eyri er nafli alheimsins í mínum bókum.“ Eitthvað sem alls ekki má missa af? „Ef þú hefur ekki smakkað hamborgara með frönskum á milli í „Gellunestinu“ þá hefurðu ekki lifað. Svo einfalt er það.“ Nafli alheimsins Jón Jósep Snæbjörnsson, söngvari og flugþjónn, er gegnheill Akureyringur og stoltur af upprunanum. Hann nýtur sín best í skíðabrekkum Hlíðarfjalls og er tíður gestur í „Gellunesti“. Hann segir fólk ekki hafa lifað fyrr en það hefur borðað hamborgara með frönskum á milli. Hann segir frá töfrum Akureyrar. Jón Jósep Snæbjörnsson tónlistarmaður sér ekki sólina fyrir heimabænum Akureyri, sem hann segir nafla alheimsins. myNd/gvA Ljósmyndasýningin Fólk verður opnuð í Listasafn- inu á Akureyri í dag. Á sýningunni má sjá verk sjö listamanna sem vinna með ljósmyndir. Allt eru þetta þekktir listamenn eins og Hrafnkell Sigurðs- son, Hrefna Harðardóttir, Hallgerður Hallgrímsdótt- ir, Hörður Geirsson, Barbara Probst, Ina Lamers og Wolfgang Tillmans. Í fréttatilkynningu frá Listasafninu segir að Barbara Probst taki myndir af aðstæðum á nákvæmlega sama sekúndubroti. Smáatriði og heildar mynd gefur áhorf- andanum heillandi yfirsýn í aðstæður á götuhorni á Manhattan. Hallgerður Hallgrímsdóttir myndar ungt fólk í dagrenningu á björtum sumarmorgnum í Reykja- vík. Ungt fólk sem ef til vill er að ljúka deginum eða að hefja nýjan. Í verkum Hrafnkels Sigurðssonar skynjum við nærveru fólks án þess að sjá það. Blautir sjóstakk- ar í skærum litum gefa til kynna erfiðisvinnu við mis- jöfn skilyrði. Í myndum Hrefnu Harðardóttur má sjá athafnakonur á sínum eftirlætisstað. Konur sem eiga margt sameiginlegt en hafa þó ólíkan bakgrunn bæði bókstaflega og huglægt. Hörður Geirsson notar vot- plötutækni frá lokum 19. aldar til að taka myndir af fólki á miðaldadögum á Gásum við Eyjafjörð og skap- ar þannig stemningu liðins tíma. Ine Lamers myndar konu í kvikmyndaveri og fjallar um mörkin á milli veru- leika og kvikmyndar.Wolfgang Tillmans tekur myndir af fólki eða líkamshlutum í neðanjarðalestum í Lond- on. Fólki sem er á ferðinni á annatíma og tekur jafnvel ekki eftir því að það sé ljósmyndað. Margvíslegt fólk í listasafninu Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður. verk hans og annarra listamanna eru á sýningunni Fólk í Listasafni Akureyrar. myNd/PJETUR KomdU NoRðUR Kynningarblað 19. mars 201612
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.