Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 103

Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 103
Verslanir Heimilistækja og Tölvu- listans hafa um árabil verið leið- andi í innflutningi og sölu á tölvu- búnaði, raf- og heimilistækjum hér á landi. Fyrirtækin reka verslan- ir víða um land, þ. á m. á Akureyri þar sem verslanir Tölvulistans og Heimilistækja voru sameinaðar undir sama þaki árið 2010. Markmiðið hefur alla tíð verið að bjóða upp á framúrskarandi vöruúrval sambærilegt því sem gerist í stærstu verslunum erlend- is en á sama tíma að veita mjög góða og persónulega þjónustu að sögn Benedikts Gunnarssonar, verslunarstjóra Heimilistækja/ Tölvulistans á Akureyri. „Við bjóð- um upp á heildstætt vöruúrval af raftækjum, heimilistækjum og tölvuvörum frá mörgum af virt- ustu framleiðendum heims eins og Philips, LG, Panasonic, Asus, Acer, Apple og Whirlpool svo nokkur séu nefnd. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum allt sem þarf í þessum vöruflokkum og bjóða upp á hagkvæmar og vandaðar vörur ásamt því að veita góða þjónustu.“ Þegar nýja verslunin verður opnuð á Glerártorgi mun verslunin við Glerárgötu loka að sögn Bene- dikts. „Helsta breytingin verður sú að vöruúrvalið mun stóraukast og þannig mun þjónusta okkar við Akureyringa og nærsveitir aukast mikið. Enn fremur er opnunar- tíminn lengri á Glerártorgi þann- ig að aðgengi verður mun betra. Það hefur hamlað okkur síðustu ár að við höfum bara getað sýnt lítið brot af þeim stóru heimilis- tækjum sem við bjóðum upp á, t.d. kæliskápum, frystikistum, þvotta- vélum og þurrkurum en það mun breytast með nýju versluninni auk þess sem úrval sjónvarpstækja mun snaraukast.“ Enn er ekki ljóst hvenær versl- unin á Glerártorgi verður opnuð en það verður síðar á þessu ári. „Það mun ekki fara fram hjá nein- um á Akureyri. Þangað til þá verð- ur fullt af lífi í núverandi verslun að Glerárgötu 30 og í dag er páska- eggjaleikur Tölvulistans í fullum gangi auk þess sem páskatilboð eru á sjónvörpum frá Phil ips og LG. Í páskaeggjaleiknum er hægt að vinna glæsilega vinninga og hvet ég alla Akureyringa til að líta inn í verslunina með miðann og kanna hvort vinningur sé á honum.“ Við bjóðum upp á heildstætt vöruúrval af raftækjum, heimilis- tækjum og tölvuvörum frá mörgum af virtustu framleiðendum heims. Benedikt Gunnarsson Benedikt Gunnarsson verslunarstjóri. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Þegar Eik fasteignafélag keypti verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri í febrúar 2014 var mikið óútleigt rými þar. Mikil vinna fór strax í að leigja út fleiri rými með áherslu á fjölbreyttan verslunar- rekstur, kortlagt út frá þeim að- ilum sem þar voru fyrir. Að sögn Garðars Hannesar Friðjónssonar, forstjóra Eikar, beindist áherslan líka að því að gera Glerártorg að hlýlegri og vistlegri verslunarmið- stöð. „Miklar framkvæmdir á inn- viðum hússins fóru af stað í kjöl- farið með aðstoð arkitekta sem sérhæfa sig í hönnun verslunar- miðstöðva. Þessi vinna tókst vel og lagði línurnar sem fylgt hefur verið eftir.“ Í dag eru tæplega 35 fjölbreytt- ar verslanir og þjónustuaðilar á Glerártorgi og þeim fer fjölgandi. Nýverið var undirritaður samn- ingur við Læknastofur Akureyrar sem tóku á leigu rúmlega helming efri hæðar Glerártorgs, um mitt árið munu Heimilistæki og Tölvu- listinn opna ríflega 1.000 fermetra verslun og fyrirhugað er að opna enn aðra glæsilega verslunina í vor. „Það er því alveg ljóst að um- svif verslunarmiðstöðvarinnar eru í sókn.“ Eik fór í miklar endurbætur á verslunarmiðstöðinni á síðasta ári. „Hljóðvist var bætt, setsvæð- um komið fyrir ásamt því sem merkingar og lýsingar voru tekn- ar í gegn. Nú er unnið að endur- hönnun á kaffihúsinu með það að markmiði að skapa hlýlegri stemn- ingu fyrir viðskiptavini.“ Á síðasta ári heimsóttu tæplega 1,8 milljónir gesta Glerártorg sem er fjölgun milli ára að sögn Garð- ars og afar jákvætt. „Mikil tæki- færi fylgja fjölgun ferðamanna og auknum kaupmætti. Góð samvinna við leigutaka skiptir miklu máli og hafa aðilar innan okkar eignasafns líka haft hug á að stækka verslanir sínar á Glerártorgi og er það vel. Við höfum miklar væntingar til Glerártorgs og það verður spenn- andi að fylgjast með frekari upp- byggingu þessarar stærstu versl- unarmiðstöðvar landsins utan höfuð borgarsvæðisins.“  Miklar væntingar til Glerártorgs Miklar breytingar hafa átt sér stað á verslunarmiðstöðinni Glerártorgi eftir að Eik fasteignafélag keypti hana árið 2014. Farið var út í ýmsar breytingar með það í huga að gera verslunarmiðstöðina bæði hlýlegri og vistlegri. Spennandi tímar eru framundan. „Við höfum miklar væntingar til Glerártorgs og það verður spennandi að fylgjast með frekari uppbyggingu þessarar stærstu verslunarmiðstöðvar landsins utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags. MYND/ERNIR Læknastofur Akureyrar (LAK) eru einkarekið fyrirtæki í heilbrigðis þjónustu og hafa þjón- að Akureyringum og nærsveit- armönnum síðan 2003. Í ágúst munu stofurnar flytja starf- semi sína í nýtt og glæsilegt hús- næði á Glerár torgi sem mun hýsa 10-12 læknastofur, tvær fullbúnar skurðstofur og allt sem þeim til- heyrir að sögn Guðna Arinbjarn- ar, bæklunarskurðlæknis og eins af stofnendum og eigendum LAK. Níu fastir starfsmenn starfa á LAK í mismunandi starfshlut- falli og nær 20 læknar. „Viðvera læknanna er mismikil en flest- ir eru þeir í vinnu á öðrum stöð- um. Sumir þeirra koma frá höfuð- borgarsvæðinu á meðan aðrir eru búsettir á Akureyri. Á Læknastof- urnar koma um það bil 1.000 sjúk- lingar á mánuði og framkvæmdar eru 150 skurðaðgerðir á sama tímabili.“ Sérfræðiþekking er mikil innan LAK en þar starfa læknar með vel á annan tug sérgreina. „Hér eru framkvæmdar hefðbundnar ferli- aðgerðir í bæklunarlæknisfræði, aðgerðir í háls-, nef- og eyrnalækn- ingum, skurðlækningum, lýtalækn- ingum, þvagfæralækningum, æða- skurðlækningum og tannlækning- um í svæfingum. Auk þess er í undirbúningi að fjölga sérgreinum á næstunni,“ bætir Guðni við. Við flutning á Glerártorg mun margt breytast. „Öll aðstaða verð- ur betri og rýmri og möguleikar á að auka starfsemina verða miklu betri. Við náum að hafa tvær full- búnar skurðstofur og fjölga skoð- unarstofum úr sjö í tólf. Til stend- ur að fjölga sérgreinum og skurð- aðgerðum og er það nú að verða mögulegt. Allt umhverfið nýtt og hannað eftir okkar óskum, þann- ig að aðstaðan bæði fyrir sjúklinga og starfsmenn verði sem best enda er húsnæði byggt upp sem lækna- stöð frá grunni.“ Aðstaðan til fyrirmyndar Úra- og skartgripaverslun Hall- dórs Ólafssonar hefur verið til húsa á Glerártorgi frá upphafi en verslunin sérhæfir sig í sölu á úrum, klukkum, skartgripum og skírnar- og gjafavörum. Verslun- in er ansi rótgróin en hún var sett á fót árið 1950 af Halldóri Ólafs- syni en er rekin í dag af syni hans, Halldóri Halldórssyni úrsmið. „Árin sextán hafa verið góð og okkur hefur vegnað vel hér. Enda hef ég verið lánsamur með bæði starfsfólk og viðskiptavini.“ Hann segir marga kosti við að vera með verslun á Glerártorgi. „Í fyrsta lagi er Glerártorg miðsvæð- is og mjög vel staðsett á Akureyri. Hér eru yfirbyggðar göngugötur og því alltaf gott veður. Nýir eig- endur Glerártorgs, Fasteignafélag- ið Eik, hafa komið sterkir inn og eru búnir að gera ýmsar góðar endurbætur á húsinu og því hefur alltaf verið vel við haldið.“ Á næstu vikum verða talsverð- ar breytingar í horni hússins þar sem verslunin er. „Framhlið versl- unarinnar verður breytt. Um leið notum við tækifærið og breytum versluninni sjálfri. Á meðan unnið verður við breytingar munum við færa verslunina okkar innar á ganginn, mitt á milli Símans og 66°Norður. Að öðru leyti er ég bjartsýnn á að endurbætur á Glerár torgi séu jákvæðar fyrir bæði okkur sem störfum hér og viðskiptavini okkar.“ Bjartsýnn á framhaldið  „Árin sextán hafa verið góð og okkur hefur vegnað vel hér,“ segir Halldór Halldórs- son úrsmiður sem hefur verið á Glerártorgi frá upphafi. MYND/AUÐUNN NÍELSSONFjölbreytt úrval Hluti starfsmanna LAK. Guðni er lengst til hægri. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Kynningarblað KOMDU NORÐUR 19. mars 2016 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.