Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 138
Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri
náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar
geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða
er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og
efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við
umhverfið.
Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást
við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi.
Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og
vísindi.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Náttúruverndarsjóði Pálma
Jónssonar. Skilafrestur er 15. apríl. Heildarúthlutun á þessu ári
nemur allt að 25 milljónum króna. Umsóknareyðublöð og allar
nánari upplýsingar má fá á vefsíðu sjóðsins:
www.natturuverndarsjodur.is.
Umsóknir sendist sjóðnum í Pósthólf 10, 550 Sauðárkróki.
Tilgangurinn er að hittast allar, sjá andlitin á bak við síma- og tölvu-skjáina og endurspegla þann-
ig þann fjölbreytileika sem raun ber
vitni um á samfélagsmiðlunum,“ segir
Hrefna Líf Óladóttir sem í dag, ásamt
Fjólu Heiðdal, stendur fyrir samkundu
þar sem framtakssamar konur á sam-
félagsmiðlunum koma saman. Upp-
haflega hafi hún séð fyrir sér að bjóða
nokkrum konum heim, en fljótlega
sprengdi sú hugmynd utan af sér og
úr varð að Hrefnu bauðst húsakostur í
sal Verbúðar 11.
„Við viljum sýna fram á að það er
ekki aðeins ein týpa í þessu, líkt og
okkur fannst áberandi í umræðunni í
kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um blogg-
ara, snappara og þess háttar,“ útskýrir
Hrefna, sem þótti umfjöllunin helst
til of slæm í ljósi þess að þar væru
stelpur sem eru áberandi á miðlunum
settar fram sem einhvers konar ímynd
um fullkomnun. „Þetta eru allskonar
stelpur, með meistaragráður, doktors-
gráður, í menntaskóla eða hvað það er.
Það er allur gangur á því.“ Hrefna segir
það mýtu að samkeppni sé allsráðandi
milli kvenna á umræddum miðlum og
blæs á slíkar sögur.
„Vissulega getur verið erfitt að koma
ný inn og á þann stað sem þig langar,
en við erum duglegar við að koma og
mæla hver með annarri. Við viljum
vera vinkonur, og þessi mynd sem
teiknuð hefur verið af okkur er röng.
Við erum mannlegri en þarna var sagt,“
bendir Hrefna á og segir um fimmtíu
konur hafa boðað komu sína. Sé þar
um að ræða þekktustu andlit sam-
félagsmiðlanna um þessar mundir, en
auk þess minna þekktar sem geti lært
heilmikið af þeim fyrrnefndu.
„Þetta verður væntanlega mjög
gaman. Við erum enn í hálfgerðu
sjokki með allar vörurnar sem við
munum gefa gestunum. Fyrirtækin
hafa verið virkilega dugleg að gefa
okkur og styrkja. Bara þetta er fyrir hátt
í sjö hundruð þúsund,“ segir Hrefna
sem bendir á að mjög greinilegt sé að
fyrirtæki treysti mikið á konur í sam-
félagsmiðlum varðandi auglýsingar í
dag. „Markaðsvaldið er mikið komið til
stelpnanna, og það er gaman.“
Hrefna segir viðtökurnar þannig
framar björtustu vonum og bendir á
að eitthvað hafi borið á að strákar vilji
vera með. „Einhverjir hafa haft sam-
band og eru öfundsjúkir yfir að vera
ekki með. Ætli við skoðum það ekki
bara,“ segir hún brosandi að lokum.
– ga
Samfélagsmiðlastjörnurnar sameinast
„Við viljum vera vinkonur,“ segir Hrefna Líf Óladóttir, sem ásamt Fjólu Heiðdal, stendur fyrir samkomu kvenna í
samfélagsmiðlum í kvöld. Þær vilja sameinast og skerpa á hve fjölbreytt flóran er í ljósi slæmrar umfjöllunar.
Hrefna og Fjóla með góssið sem fyrirtæki gefa þeim í tilefni samkomunnar í formi “goodie bags”.
Fréttablaðið/SteFán
Þetta verður
væntanlega mjög
gaman. við erum enn í
hálfgerðu Sjokki með allar
vörurnar Sem við munum
gefa geStunum.
1 9 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r74 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð