Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Side 42
Við látum málið
okkur varða
Svo nefnist skýr og
greinargóður upp-
lýsingabæklingur gefinn
út af Félagi talkennara
og talmeinafræðinga.
Lögð er í upphafs-
orðum áhersla á hve mál
og tal eru mikilvægur
þáttur í lífi hvers manns
svo og það að allir geti
átt í tímabundnum erfið-
leikum með að tjá sig.
Síðan eru helstu tal- og
málmein talin upp:
Frávik í málþroska og
framburði, annars vegar
erfiðleikar með að tala
skýrt, hins vegar erfið-
leikar tengdir skilningi,
orðaforða o.s.frv.
Stam. Greina þarf það eins
snemma og unnt er.
Raddvandamál s.s. langvarandi
hæsi og vandræði með röddina
vegna sjúkdóma og sálrænna erfið-
leika. Sumir þurfa að láta fjarlægja
allt barkakýlið- þá þjálfuð upp “ný
rödd.”
Tjáningarerfiðleikar eftir heila-
blóðfall s.s. málstol og
þvoglumæli. Sömuleið-
is vegna höfuðáverka
geta af orðið tjáningar-
erfiðleikar.
Þá er sagt frá öðrurn
erfiðleikum sem tal-
kennarar og talmeina-
fræðingar fást við og
nefnd dæmi um kyng-
ingarerfiðleika og svo
minnt á þá sem ekki geta
talað og verða að koma
máli sínu á framfæri
með óhefðbundnum
tjáskiptaleiðum.
Að lokum er sagt frá
starfi þessara tveggja
stétta, hvert hægt sé að
leita, hvar þetta fólk starfar, hversu
námi er háttað og félaginu sjálfu
gjörð skil en það var stofnað 1981, í
því um 55 félagar. Félag talkennara
og talmeinafræðinga gefur upp póst-
hólf 8730 - 123 Reykjavík.
Ljósar upplýsingar í stuttu en
meitluðu máli svo sem vera ber, því
þetta mál varðar alla.
H.S.
Forsíðan
Til umhugsunar
Vilji ég aðstoða einhvem til að ná settu marki, verð ég að nálgast hann
á því stigi sem hann er og heijast þar handa.
Þeir sem ekki geta það, blekkja sjálfan sig, haldi þeir að þeir geti hjálp-
að öðrum. Til þess að hjálpa, verð ég tvímælalaust að vita meira en hvað
viðkomandi getur; aðalatriðið er að ég skilji hvað hann skilur.
Geti ég það ekki, skiptir engu máli hve vitur ég er. Vilji ég sarnt sem
áður sýna visku mína, kem ég upp um hégómleika minn og hroka og læt
dást að mér, í stað þess að hjálpa.
Raunveruleg hjálpsemi byggist á auðmýkt gagnvart þeim sem ég vil
leiðbeina, þess vegna verð ég að skilja að hjálpa er ekki að ráðskast með,
heldur að gefa af sjálfum sér. Geti ég það ekki, get ég engum hjálpað.
Sören Kirkegaard,
danskur heimspekingur.
Ath. Þessa góðu sendingu fengum við einn miður mildan morgun frá
Magnúsi Þorgrímssyni framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra á Vesturlandi og fyrrv. formanni Geðhjálpar. Orð að sönnu og því
áfram send til ykkar lesenda.
Neistinn
5 ára
r
Inýjasta hefti Velferðar, mál-
gagns og fréttabréfs Lands-
samtaka hjartasjúklinga kennir
s.s. ætíð áður margra góðra
grasa.
Þar kemur m.a. fram að Neist-
inn, styrktarfélag hjartveikra
bama varð 5 ára hinn 5. maí sl.
Af þessu tilefni ritar núv. for-
maður Neistans, Valur Stefáns-
son, glögga grein sem gripið
verður rétt niður í.
Hratt flýgur tíminn hjá, svo ör-
stutt sem ritstjóra þykir síðan
hann átti tal við forystukonur í
fyrstu stjórn Neistans og efni
þessu tengd skilað hingað inn á
síður.
I grein sinni minnir Valur á þá
staðreynd að fyrir þessum fimm
árum voru öll börn send erlendis
til hjartaaðgerða, en nú er meiri-
hluti þessara aðgerða fram-
kvæmdur hér á landi, en 10-15
hjartaaðgerðir á börnum hafa
hér verið gerðar á undanförnum
árum. Dýrmætt fyrir aðstand-
endur og sparnaður um leið fyrir
hið opinbera.
Neistafólk horfir björtum
augum til nýja Barnaspítalans á
lóð Landspítalans að vonum.
Neistinn er með styrktarsjóð
og grunnur að honum lagður
með glæsilegri landssöfnun 14.
mars 1997. 14. mars síðan há-
tíðlegur haldinn með því að
safna blóði fyrir Blóðbankann. I
árslok 1998 gaf Neistinn Barna-
spítala Hringsins haus á ómsjá
að verðmæti tvær milljónir
króna og þykir ritstjóra rausn
þeirra Neistamanna rík. Sumar-
ferð hefur verið farin á hverju
ári til gagns og gleði fyrir alla.
Aðsetur Neistans er á Suður-
götu 10 og núv. formaður, Valur
Stefánsson, trúlega tekinn tali í
haustblaðinu. Til hamingju og
heilla skal haldið fram og héðan
sendar einlægar velfarnaðar-
óskir. H.S.
42