Skessuhorn - 16.12.2020, Side 60
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202060
blaðamaður mætir á snyrtistofuna
Flikk, ekki til að láta flikka upp á
sig að þessu sinni, heldur til spjalla
við við söru björg bjarnadóttur,
snyrtifræðing og listamann. Hún er
stofnandi og eigandi snyrtistofunn-
ar og rekur hana í dag með bestu
vinkonu sinni. sara björg á kannski
ekki langt að sækja listræna hæfi-
leika en faðir hennar er bjarni Þór
bjarnason listamaður á Akranesi.
Viðmótið er hlýtt þegar hún tekur
á móti blaðamanni. Þegar gott kaffi
er komið í bollann er hægt að hefja
spjallið um lífið, listina og ekki síst
slysið sem olli straumhvörfum í lífi
hennar.
Harmleikur í
fjölskyldunni
sara björg er ættleidd frá sri Lanka
af foreldrum sínum Ingibjörgu
Njálsdóttur, sem alltaf var köll-
uð Imba, og bjarna Þór bjarna-
syni listamanni. „Ég er alin upp
hér á Akranesi og hef verið hérna
alla mína ævi, svona að mestu alla
vega,“ segir sara björg brosandi í
upphafi máls. „Foreldrar mínir áttu
bæði börn fyrir þegar þau kynn-
ast, rugla saman reitum og fara að
búa saman. en af því að mamma
var með meðfæddan hjartagalla var
henni ráðlagt að eignast ekki fleiri
börn. Þau ákváðu því að ættleiða
eitt barn og það er ég,“segir sara
björg. „Mamma deyr þegar ég er
átta ára gömul. Hún hafði ekki ver-
ið neitt meira veik veturinn áður en
hún lést, en varð samt bráðkvödd.
Það var auðvitað gríðarlegt áfall
að missa móður sína svona ungur
og ég vann líklega ekki úr því að
gagni fyrr en miklu síðar. en pabbi
er mikil perla, mikið betri en eng-
inn. Við erum mjög náin og höfum
brallað ýmislegt saman. Við vorum
ein í eitt ár. Þá kynnist hann ann-
arri konu, Ástu salbjörgu Alfreðs-
dóttur, og þau búa saman í dag.“
Besti pabbi í heimi
„eftir fráfall mömmu, upplifði ég
okkur pabba bara tvö ein í heim-
inum. Við fengum enga hjálp og
þurftum bara að treysta hvort á ann-
að, en hann er frábær pabbi, hefur
gert svo margt fyrir mig. Gefið mér
ómældan tíma og þolinmæði, sem
ég mun aldrei gleyma,“ segir sara
björg og það kemur ljúft blik í aug-
un. „Við gerðum svo margt,“ heldur
hún áfram. „Við vinkonurnar vor-
um með algjört „spice girls“ æði á
þessum tíma og hann fór með okk-
ur út um allan bæ til að hjálpa okk-
ur við að taka myndir og æfa okkur.
Leigði salinn í skólanum til að þetta
væri nú almennilegt. Tók síðan allt
upp svo við gætum fínpússað spor-
in. Við tróðum síðan upp á bekkjar-
kvöldum, við misgóðar undirtektir.
Það voru allir að verða brjálaðir á
okkur,“ og sara björg skellihlær.
„einu sinni sátum við feðgin heima
og leiddist. Þá fékk hann þá hug-
mynd að taka sófaskemilinn í sund-
ur og búa til svampakarla úr hon-
um. Hver gerir bara svona?“ Og
sara björg brosir að þessari góðu
minningu. „Þetta var ótrúlegt en
samt svo geggjað. Ég get talið upp
milljón svona atriði sem við gerð-
um. Hann er alltaf að gefa mér af
sér. einu sinni bauð hann okkur í
páskaeggja ratleik, sem dreifðist út
um bæinn og endaði síðan í garð-
inum hjá honum. Þar átti að kippa i
spotta og „púff“ páskaegg svifu nið-
ur af þakinu. Hann er alveg ótrú-
lega magnaður maður.“
Skólagangan
„Mér gekk ekkert vel í skóla, það
var líka þannig áður en mamma dó
en varð enn erfiðara eftir að hún var
fallin frá. Ég var með svo mikinn
athyglisbrest og var oft ansi skraut-
leg,“ segir hún og hlær. „Það voru
engar greiningar á þessum árum,
en ég er fædd 1985. Ég náði svo
sem prófunum, en það voru ekki
neinar skrautfjaðrir þar. Ég hafði
alltaf verið að teikna og mér gekk
langbest í handavinnu. svo fór ég í
listnám en fann mig ekki í málverk-
inu. Mig langaði mest að smíða, að
verða gullsmiður. en þá var ég orð-
in ófrísk svo það varð ekkert frekar
af því. Ég var samt byrjuð að vinna
á verkstæði hjá gullsmið. eftir að
ég átti soninn, þá fór ég og lærði
snyrtifræðina og opnaði stofu. Það
er ekki fyrr en núna sem ég er farin
að snúa mér að málverkinu að nýju.
Mér finnst gaman að vinna í hönd-
unum, svona almennt, til dæmis að
prjóna og held áfram að teikna, þó
ég sé komin af stað í vinnu við mál-
verk.“
Ástin í lífinu
Þegar sara björg er fjórtán ára
kynnist hún ástinni í lífi sínu,
brynjólfi sæmundssyni, og þau
hafa að mestu verið saman síðan þá.
Þau kynntust í hestaferð sem haldin
var í Tungu fyrir unglinga og féllu
fyrir hvort öðru. „sem unglingar
voru við svo sem sundur og sam-
an, til að byrja með, eins og ung-
lingar gera stundum, en síðan kom
bara sá tími að við sáum að við vild-
um leiðast út í gegnum lífið og ég
er enn að falla fyrir honum, eftir öll
þessi ár. Við eigum þrjá stráka; 12,
10 og 4 ára og búum í stóru húsi,
rétt fyrir utan Akranes og þú get-
ur ímyndað þér hvort það sé ekki
oft fjör í húsinu. eftir að við vorum
búin að vera saman í nokkurn tíma,
gerðist ég svo frökk að flytja eigin-
lega bara heim til hans. Tengdafor-
eldrar mínir tóku mér opnum örm-
um. Og Valdís, tengdamóðir mín er
algjörlega einstök, alltaf verið mér
góð og haft mikil áhrif á líf mitt.
Hún varð kannski svolítið mamma
mín líka. Ég átti erfitt andlega og
glími alveg við það enn í dag. Ég
var ótrúlega leitandi að einhverju
sem ég vissi ekki alveg hvað var. Ég
var mjög heppin að kynnast mann-
inum mínum svona ung, því þetta
var erfiður tími. Hann er einstak-
ur og hefur alltaf verið kletturinn
minn í einu og öllu. styður mig
en kippir mér líka niður á jörð-
ina þegar þess þarf. Án þeirra allra
veit ég ekki hvar ég væri í dag, því
ég var ansi tæp á þessum tíma. Ég
datt sannarlega í lukkupottinn með
þessa fjölskyldu.“ Þau hjónin eiga
heima á silfurbergi, sem er staðsett
við bæinn beitistaði. Í næsta húsi
búa tengdaforeldrarnir, bara tún-
blettur á milli, sem m.a. er nýttur til
sameiginlegrar beitar fyrir hrossin
sem þau eru með. „strákarnir okk-
ar eru himinsælir yfir að búa svona
nálægt ömmu og afa. Það þarf bara
að skjótast yfir túnið. Við erum líka
staðsett nógu langt frá þjóðvegin-
um svo við heyrum ekkert í um-
ferðinni. Við keyptum húsið hálf-
fokhelt og ég féll alveg fyrir því og
staðnum þegar við skoðuðum á sín-
um tíma.Við höfum svo verið að
koma því í stand.“
Sveitin
Þau sara björg og brynjólfur
hafa bæði gaman að hestum. eins
og fram hefur komið, stundaði
hún það sport sem krakki og seg-
ist meira að segja hafa náð sér í Ís-
landsmeistaratitil þegar hún var
yngri. „en ég hef ekki farið á bak
eftir slysið. er ekki viss um að geta
haldið nógu vel í tauminn, en það
kemur. Við nýtum hesthús og beit-
arland með tengdaforeldrunum,
sem kemur öllum vel.“ brynjólfur
er einnig með kindur sem hún seg-
ist ekki hafa mikið vit á, en klapp-
ar þó hrútunum. „Mér líkar vel við
þá,“segir hún hlæjandi. „eigin-
maðurinn ætlaði bara að vera með
fáar kindur, byrjaði með tíu að mig
minnir. Ég held að þær séu orðnar
80 núna. er það ekki tilhneigingin,“
spyr hún glettin og svarar sjálfri sér,
„ég held það“. Hann hefur reyndar
rosalega gaman af kindunum. Það
sem einnig er gott við þessa stað-
setningu er að við erum í hæfilegri
fjarlægð frá þéttbýlinu. Ég get sótt
vinnu á Akranes án nokkurra vand-
ræða en einnig horfið heim í frið-
inn þegar vinnudegi lýkur. eftir
langan vinnudag er alveg dásamlegt
að komast heim í kyrrðina.“
Slysið
Fyrir ári, nánar tiltekið 12. apríl
2019, lenti sara björg í bílslysi
sem breytti lífi hennar á margan
veg. „Það var mikil gæfa að ég var
á bílnum hans tengdapabba, göml-
um bens, þungum og traustum.
Ég hafði oft keyrt þennan bíl áður
og var vön honum. Þegar ég fór
að heiman var ekkert rok, og mér
fannst svo sem ekkert hvasst á leið-
inni. en er ég nálgaðist Akranes fór
að hvessa og allt í einu kemur vind-
hviða upp úr þurru. bíllinn fór að-
eins útaf og ég var alltaf að reyna að
halda honum á veginum. Ég man
ekki ískrið í dekkjunum og bílinn
hringsnerist á veginum og ég vissi
að þetta myndi ekki enda vel. svo
fór hann öfugur út af, og fór fjórar
veltur, sem mér fannst taka heila ei-
lífð. Þakið kýldist alveg niður nema
þar sem ég sat, kannski hefur ein-
hver góður verið með mér,“ seg-
ir hún hugsi og heldur áfram. „Ég
meiddist ekkert mikið miðað við
hvað bíllinn er mikið skemmdur,
en ég er samt ekki farin að vinna
Slysið sem breytti öllu
Í heimsókn hjá Söru Björg Bjarnadóttur, snyrtifræðingi og listamanni í Hvalfjarðarsveit
Sara Björg Bjarnadóttir er hér á vinnustofu Bjarna Þórs, föður síns. Hún býr til málverk þar sem litum er hellt yfir strigann og
þeir blásnir með ákveðinni tækni. Ljósm. mm.
Málverk Söru Bjargar eru óvenjuleg og falleg eins og sjá má. Ljósm. úr einkasafni