Blik - 01.05.1962, Page 14
12
B L I K
SEXÆRINGURINN HANNIBAL
OG SKIPSHÖFN
Mennirnir eru þessir (f.v.): Ólaf-
ur Diðrik Sigurðsson, Strönd. Arn-
björn Ögmundsson, Prestshúsum.
Guðjón Eyjólfsson, Kirkjubæ, sem
sést naumast á myndinni. Ögmund-
ur Ögmundsson, Landakoti. Magnús
Guðmundsson, Vesturhúsum.
Við birtum þessa mynd m. a. til
þess að minna á og fræða um al-
menna staðreynd í atvinnulífi Eyja-
búa, þar til vélbátaútvegurinn
hefst 1906. Magnús Guðmundsson,
bóndi á Vesturhúsum, var á síðustu
tímum opnu vertíðarskipanna for-
maður á stærsta skipinu í Vest-
mannaeyjahöfn, Ingólfi.
Á vorin og sumrin stundaði hann
sjóinn á Hannibal, nema þá lunda-
veiðítímann. Við vitum með vissu,
að hann réri á Hannibal 10 vor-
og suimarvertíðir. Eftir að línan
var tekin í notkun 1897, veiddist
mjög mikið af löngu á grunnmið-
unum við Eyjar og var sjósókn
stunduð af kappi.
Með Magnúsi réru mörg vor og
sumur fastir hásetar á vetrarver-
tíðarskipinu Gideon með Hannesi
Jónssyni.
Á þjóðhátíð Vestmannaeyja 1901
var háður kappróður á feræringum
yfir höfnina. í>á vann þessi skips-
höfn á Hannibal kappróðurinn.
Á Þorra (9. febr.) 1895 hvolfdi
Hannibal á Leiðinni og drukknuðu
þá tveir menn af bátnum, Lárus
Jónsson, bóndi og hreppstjóri á
Búastöðum, og Bjarni Jónsson.
Kristján Ingimundarson, Klöpp, og
skipshöfn hans björguðu þá 5
mönnum af bátnum.
Mynd þessi, sem hér birtist af
Hannibal, er tekin eftir mynd, sem
Jórunn Hannesdóttir, ekkja Magn-
úsar Guðmundssonar á Vesturhús-
um, hefur gefið Byggðasafni Vest-
mannaeyja.