Blik - 01.05.1962, Page 31
B L I K
29
Árið 1792 stofnaði Stefán
Thorarensen amtmaður fyrsta
lestrarfélag norðanlands, og
náði það yfir þrjár sýslur.
Bókasafn Vesturamtsins í
Stykkishólmi tók til starf a 1847,
og 1851 var stofnað fyrsta
lestrarfélag í Árnessýslu. 1 Mý-
vatnssveit var stofnað lestrar-
félag 1848.
Á Barðaströnd voru stofnuð
4 lestrarfélög fyrir bein áhrif
frá Flateyjarsafni; hið 5. var
lestrarfélagið í Vestmannaeyj-
um. Bjarni E. Magnússon ólst
upp með Flateyjarsafni og
þekkti menntagildi þess. Það lá
því í hlutarins eðli, að jafn
framfarasinnaður maður mundi
reyna slíka félagsstofnun í sinni
sýslu. Hann vissi manna bezt,
hverja þýðingu góður bókakost-
ur hafði fyrir fátækt fólk í ein-
ungraðri byggð. Þetta er
Matthíasi Jochumssyni enn í
fersku minni á gamals aldri:
>,Þá hófust lestrarfélög víða um
sveitir í líkingu við framfara-
stiftunina í Flatey, þannig var
eitt félag fyrir Reykhóla og
Gufudalssveit, er ég man fyrst
“1; gengu bækurnar bæja á
í belgjum, og er mér í
harns minni fögnuðurinn, þegar
þeir belgir héldu innreið sína.“
Bækur Lestrarfélags Vest-
uiannaeyja voru geymdar í
„Stiftelsinu“ (nú Landlyst)
uieðan Bjarni sýslumaður veitti
safninu forstöðu og nokkru
lengur. Útlán voru tvisvar í
viku frá haustnóttum til ver-
tíðar. Sýslumaður annaðist all-
an rekstur félagsins og lánaði
sjálfur bækurnar, meðan hann
bjó í Eyjum. Hélt hann ná-
kvæma bók yfir starfsemi fé-
lagsins, skrá yfir öll útlán, lán-
þega, láns- og skiladag. Útlána-
skrá í sama formi var haldið
áfram til aldamóta.
Að loknu dagsverki ganga
þreytulegir erfiðismenn á fund
yfirvaldsins með dýrmætar
bækur bundnar í klút; bókunum
er skilað og aðrar fengnar í
staðinn. Sýslumaður skrifar
nöfn bóka og manna í þartil
gerða dálka, veitir leiðbeiningar
um lestrarefni o. s. frv. Og svo
er haldið heim með tilhlökkun
í huga yfir ólesnum bókunum,
þar er eitthvað fyrir andann í
allri hinni efnalegu fátækt.
Mundi þá ekki margur hafa
hugsað sem svo: „Svona eiga
sýslumenn að vera.“
Félagatala hélst svipuð til
ársins 1868. Það ár voru félag-
ar 28, en svo fór félögum fækk-
andi; hefur versnandi árferði
vafalaust átt sinn þátt í því.
Næstu árin eru félagar aðeins
18 og fækkar enn niður í 12 tvö
síðustu árin, sem B.E.M. veitti
félaginu forstöðu. Og sú varð
raunin á, að mörg lestrarfélög
lögðust niður. I Fréttum frá Is-
landi segir svo 1871: ,,Af lestr-
arfélögunum er lítið að segja.