Blik - 01.05.1962, Blaðsíða 51
B L I K
49
í þeim gjaldfríum. Þá var fellt
niður, að sýslumaður og sókn-
arprestur skuli veita félaginu
forstöðu. Skal nú kosin þriggja
manna stjórn á aðalfundi, er
halda skal í janúar ár hvert, í
stað fardaga áður. Áður hefur
verið sagt frá þeirri lagagrein,
er felur í sér hvaða efnisflokka
skuli einkum velja í safnið. Um
útlán, segir, að bækur skuli
vera í góðu standi og útlán
fara fram 1—2 í viku. Enginn
flaá fá fleiri bækur en tvær í
einu og ekki skal halda þeim
lengur en tvær vikur. Sé bók-
um haldið lengur, skal greiða
f 0 aura sekt fyrir hvern dag.
Utlán hefjast í október og skal
hætt 1 marzlok, en heimilt er
félagsmönnum að fá bækur
lánaðar að sumrinu, ef þeir
éska þess. Fullar bætur greið-
lst, sé bók skemmd 1 láni.
Eftir fimm ár eða því sem
uæst, voru enn samþykkt ný
|ög fyrir félagið. Helztu breyt-
lngar eru þær, að árgjald er þá
kr. 1.50, sem greiðist fyrirfram
>>í peningum eða innskrift" og
úrsögn skal vera skrifleg.
Stjórnina skipa þrír menn eins
°g áður, formaður, gjaldkeri og
»útlánsmaður“ sá þriðji og er
það nýtt ákvæði, en áður skipti
stjórnin með sér verkum.
f'á er einnig nýtt ákvæði, þar
Sem segir, að aðalútlánsmanni
skuli greidd þóknun, er aðal-
fundur ákveður, en aðstoðar-
menn bókavarðar starfi kaup-
laust; eru þó ekki skyldir að
taka kosningu nema eitt ár í
senn (seinna gjaldfríir). For-
maður félagsins sér um bóka-
kaup og ákvæðið um, hvaða rit
skuli kaupa og ekki kaupa,
helzt óbreytt. Þá er nýtt á-
kvæði um bókalán til utanfé-
lagsmanna; þeir eiga þess nú
kost að fá lánaðar bækur gegn
20 aura gjaldi fyrir bók, sem
er 20 arkir eða meira, en fyrir
m:nni bækur er gjaldið 1 eyrir
fyrir örkina.
Loks skal aðeins vikið að
því, hvaða bækur LV voru eft-
irsóttastar síðustu tvo áratugi
19. aldar. Skáldsagan Aðal-
steinn, eftir Pál Sigurðsson, má
heita alltaf í láni. Þúsund og
ein nótt hefur enn sama að-
dráttaraflið. Sögur Jóns Thor-
oddsens mikið lesnar — og eru
enn. Stjörnufræði Ursins, Nýja
sagan, ljó)ð Jóns á Bægisá,
Snót, Lýsing fslands, Eldrit og
Sjálffræðarinn, allt eru þetta
góðir gestir á heimilum alþýðu-
fólks. Tyrkjaránssaga er fyrst
lánuð 1886 og um þá bók er rif-
izt; orsakir þess þarf ekki að
rekja. Brynjólfur Sveinsson eft-
ir Torfhildi Hólm, var vinsæl
saga framyfir aldamót, sama
er að segja um Eldingu eftir
sama höfund. Fáir lesa þær nú.
Sögur Gests Pálssonar vildu
menn gjarna lesa, Mannamunur
alltaf jafn vinsæll og nú bæt-