Blik - 01.05.1962, Page 64
62
B L I K
Hallgrimur Jónasson, kennari.
í Skagafirði 30. okt. 1894.
Hann tók kennarapróf árið
1920 og hóf sama ár nám við
kennaraháskólann í Khöfn.
Árið 1931 hóf Hallgrímur
kennslu í Kennaraskólanum og
hefur verið þar yfirkennari ár-
um saman. — Hallgrímur hefur
ritað árbók Ferðafélagsins um
Skagaf jörð, ferðabókina Frænd-
lönd og iheimahaga og ferðaljóð.
Þá hefur hann skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit. Hall-
grímur hefur átt sæti í stjórn
Ferðafélags Islands í fjölda ára
og er einn vinsælasti fararstjóri
þess. Miklum fjölda íslendinga
og erl. manna hefur Hallgrímur
kynnt landið og sögu þjóðar-
innar.
Hallgrímur sá bókahlaðana í
kjallara skólans og þótti illa
horfa um hag þessa gamla og
merkilega safns. Skrifaði hann
grein í blaðið Skjöld og hvatti
eindregið til þess, að safnið
yrði endurreist. Hann lofar fyr-
ir sitt leyti fylgi við hið van-
hirta safn. Vanrækslusyndirnar
verða ekki kenndar neinum sér-
stökum, hitt er mest um vert,
að safnið verði endurreist. „All-
ir bókelskandi, hugsandi menn
trúa því, að bækur, sem geyma
göfugar hugsanir, muni vekja
lesandanum samskonar hugsan-
ir og tilfinningar.“ Þá segir
Hallgrímur, að það sé ekki nóg,
að bókavörðurinn hirði um sitt
safn, hann þurfi líka að geta
leiðbeint. Víst sé f járhagur bæj-
arins ekki góður, en sé öðrum
fjölmennasta kaupstað landsins
um megn að reka safnið, þá sé
illa farið. Hæg er leið niður á
við. Og vonandi sé Vestmanna-
eyingum metnaðarmál að reisa
safnið úr rústum hið fyrsta. Að
lokum segir Hallgrímur, að
hann hafi kynnt sér meðferð
safna, flokkun og spjaldskrár-
gerð, og býður aðstoð sína til
þess að gera safnið starfhæft
að nýju.
Var nú brátt hafizt handa að
koma safninu í viðunandi horf,
bækurnar hreinsaðar, þurrkað-
ar og settar í skápa. Vann Hall-
grímur að því um sumarið, að
gera safnið útlánshæft, og í
byrjun október 1924 hófust svo
útlán í vesturenda kjallara