Blik - 01.05.1962, Blaðsíða 102
100
B L I K
nemendatölu, að 90 rúmfeta
loftrúm sé handa hverjum nem-
anda, og talið vera minnsta
loftrúm, sem hæfilegt er hverju
bami, segir þar.
Þegar þessum ákvæðum hafði
verið bætt inn í reglugjörðina,
staðfestu stiftsyfirvöldin hana.
Það var vorið 1891.
Hér birti ég reglugjörðina til
fróðleiks og geymslu.
KEGLUGJÖRÐ
fyrir barnaskólann í Vest-
mannaeyjum, staðfest 20. maí
1891.
1. gr.
Það er ætlunarverk skólans að
kenna börnum og ófermdum ung-
lingum kristindóm, lestur, skrift,
réttritun, reikning, megin-atriði
landafræðinnar, einkum Islands, og
helzftu grundvallaratriði nálttúru-
sögunnar, svo sem um byggingu
mannlegs líkama, loft, hita og
þyngd, — og ennfremur söng.
2. gr.
Stjórn skólans skal falið á hend-
ur þriggja manna skólanefnd.
Formaður þeirrar nefndar er sókn-
arpresturinn. Hina tvo kjósa sýslu-
nefnd og hreppsnefnd, sinn hvor úr
sínum flokki.
3. gr.
Það er á valdi skólanefndarinn-
ar, hvort fleiri fræðigreinar eru
kenndar í skólanum en þær, sem
taldar eru í fyrstu grein.
4. gr.
Skólanefndin má veita móttöku
í skólann hverju barni í Vestmanna-
eyjum, sem er fullra 7 ára að aldri,
og svo undirbúið í lestri, að það
geti nokkurnveginn kveðið að Hún
má og taka í skólann, með því
skilyrði, sem nú var sagt, börn, sem
eiga heima annars staðar en í Vest-
mannaeyjum, að svo miklu leyti,
sem rúm og kringumstæður leyfa.
5. gr. t
Skólinn byrjar árlega á tímabil-
inu frá 1. okt. og skal standa að
minnsta kosti 6 mánuði. Þann tíma,
er börn almennt koma í skólann,
ákveður skólanefndin árlega og
auglýsir hann fyrirfram árlega með
nægum fyrirvara.
Taka má barn í skólann, eftir að
hann er settur.
6. gr.
Á hverjum virkum degi um skóla-
tímann skulu vera 5 kennslustund-
ir og byrja kl. 10 f.h. Þó má skóla-
nefndin með samþykki sýslunefnd-
arinnar stytta kennslutímann, svo
að hann sé 4 stundir á dag allan
skólatímann eða nokkurn hluta
hans. t
Kennsla á hverjum degi byrjar
með stuttri bænagjörð.
Sömuleiðis skal börnunum gefið
5 mínútna frí milli kennslustund-
anna, en séu kennslustundirnar 5,
þá einnig 10 mínútur einu sinni á
dag. Að öðru leyti skal kennslu-
stundum hagað samkvæmt lestöflu,
er sóknarpresturinn og hlutaðeig-
andi kennari semja fyrir hvert
skólaár.
7. gr.
Á hverju skólaári skal halda tvö
opinber próf, annað 22. eða 23. des-
ember, hitt í lok skólaársins.
Prófdómendur séu sóknarprestur-
inn og annar maður, er sýslunefnd-
in kýs, og taka þeir til spurningar c
við prófin. Að afloknum prófum í
lok skólaársins sé af sóknarprest-
inum haldin stutt ræða og sálmar
sungnir fyrir og eftir.
8. gr.
Hverju barni skal gefin einkunn
í hverri námsgrein, sem það er