Blik - 01.05.1962, Page 104
102
B L I K
samþykki þau endanlega
„hvorttveggja eftir tillögum
skólanefndarinnar.“ (Samanber
10 gr.).
Samkvæmt reglugjörðinni var
presturinn gerður að eiginleg-
um skólastjóra barnaskólans í
Vestmannaeyjum og meira að
segja tekið fram, að 'honum
bæri að flytja ræðu við skóla-
slitin, slíta honum.
Þegar stiftsyfirvöldunum
barst skýrsla barnaskólans
1891, höfðu þau ýmislegt við
hana að athuga. Ekki hafði t.
d. verið fullnægt fyrirskipun-
um um kennslu í landafræði og
náttúrufræði. Yfirvöldin töldu
það ekki fullnægjandi skýringu
hjá presti fyrir hönd skóla-
nefndar, að bækur í þessum
kennslugreinum hefðu ekki
verið fáanlegar, þar sem allir
aðrir barnaskólar í landinu
höfðu getað aflað sér þeirra.
Einnig vantaði greinargerð fyr-
ir tilhögun kennslunnar og hve
mörgum stundum var varið til
kennslu hverrar námsgreinar.
(Bréf Hallgríms biskups Sveins-
sonar dagsett 13. júní 1891 til
séra Oddgeirs Guðmundsen).
Þessi óánægja olli því, að skól-
inn fékk hlutfallslega lægri
styrk úr landssjóði en flestir
aðrir sambærilegir skólar í
landinu og styrkur helmingi
lægri en hann var fyrir 4 ár-
um (1887).
Árið eftir (1892) láta stifts-
yfirvöldin einnig óánægju í Ijós
um ýmislegt varðandi Vest-
mannaeyjaskólann. Þar segir
svo í bréfi þeirra til landshöfð-
ingja:
„Vér skulum taka fram, að
það var galli síðasta ár, að ekk-
ert próf var haldið í náttúru-
fræði. Vér getum eigi heldur
bundizt þess að láta í ljós það
álit vort, að einkunnagjöf í
skólanum næst liðin 3 ár hafi
verið hóflauslega há, þar sem
flest börnin hafa ágætlega í
mörgum kennslugreinum. Eins
og slíkt getur naumast verið
rétt, mun það eigi heldur hafa
holl áhrif á álit barnanna
sjálfra á þekkingu sinni.“
Vorið 1893 sagði Árni Filipp-
usson af sér kennslustörfum og
gaf ekki kost á sér lengur við
skólann. Hafði hann þá verið
kennari við hann í 7 ár við
góðan orðstír. Flest árin voru
hjá honum 15—18 nemendur
eins og áður segir, stundum
jafnvel yfir 20. Þeir voru alltaf
í einni deild, þó að aldurinn og
þroskinn væri misjafn, 10—15
ár. Sökum þess hve gamlir
sumir nemendurnir voru, var
skólinn í bréfum til stiftsyfir-
valdanna kallaður „barna- og
unglingaskólinn í Vestmanna-
eyjum.“
Jafnframt bamaskennslunni
rak Ámi Filippusson unglinga-
skóla, kvöldskóla, að vetrinum
í 3 vetur. Það er vitað, að synir