Blik - 01.05.1962, Side 112
110
B L I K
—1. marz, og nemendatal um
40, stundum fleiri, stundum
færri. Árið 1898—1899 voru t.
d. 20 nem. í eldri deild og 24 í
yngri deild. Næstu 3 árin gengu
árlega innan við 40 nemendur
í skólann.
Prófdómendur voru um nokk-
urra ára skeið fyrir aldamótin
og fram yfir þau: Þorsteinn
læknir Jónsson og Magnús
sýslumaður Jónsson (tók við
embættinu af Jóni Magnússyni
1896) í efri deild, Sigurður
Sveinsson og ýmsir með honum
í yngri deild, m. a. Engilbert
Gíslason, þá um tvítugt, verzl-
unarmaður hjá föður sínum í
verzluninni Júlíushaab eða
Tangaverzluninni öðru nafni.
Nú dregur að þáttaskilum í
starfsemi skólans. Óska ég því
að birta útdrátt úr skýrslu um
hann skólaárið 1901—1902.
Skólinn var settur 1. sept.
1901 með 39 nemendum, 19 í
eldri deild og 20 í deild yngri
nemenda. Margt ungmennið
varð að vera án skólagöngunn-
ar sökum þess, að skólahúsið
var alltof lítið og erfitt að
starfa þar með þetta marga
nemendur. (Sjá mynd og skýr-
ingu við hana).
Kennarar þetta skólaár voru
hinir sömu og áður. Próf sam-
kvæmt reglugjörð voru þreytt
fyrir jól og svo í lok skólaárs-
ins í enduðum febrúarmánuði.
Prófdómendur í eldri deild
voru sem áður þeir Þorsteinn
læknir og Magnús sýslumaður,
en í yngri deild þeir Árni
Filippusson, fyrrverandi kenn-
ari, og Jón Einarsson á Gjá-
bakka.
Reikningur skólans fyrir
þetta skólaár sannar kaup-
greiðslur og fleira.
Tekjur:
1. Styrkur frá landssj. kr. 242,00
2. Húsaleiga — 30,00
3. Tillag úr sveitarsjóði — 337,25
Tekjur alls kr. 609,25
Gjöld:
1. Viðhald og áhöld kr. 28,75
2. Eldiviður — 30,50
3. Laun kennaranna — 430,00
4. Hirðing skólahússins — 30,00
5. Greiðsla til landssjóðs
(af láninu) — 90,00
Gjöld alls kr. 609,25
1 marzmánuði árið 1900 sam-
þykkti sýslunefndin enn breyt-
ingar á reglugjörð skólans, (frá
árinu 1896). Helztu breyting-
arnar voru þessar:
2. gr.
Stjórn skólans skal falin á hend-
ur þriggja manna nefnd. í henni
sitja auk sóknarprests, sem er for-
maður nefndarinnar, sýslunefndar-
oddviti og hreppsnefndaroddviti.
4. gr.
í stað: .... „og svo undirbúin í
lestri, að það nokkurn veginn geti
kveðið að,“ komi: „og svo undirbúið,
að það geti nokkurn veginn fleytt
sér í lestri.“
6. gr.
I stað: „.... og 10 mínútna frí