Blik - 01.05.1962, Page 113
B L I K
111
utm 'hádegið," komi: „og 15 mínútna
frí um hládegiS.“
7. gr.
í stað: „.... er sýslumaður kýs“,
komi: „er skólanefndin kýs.“ Og í
stað „.... að afloknu prófi í lok
skólaársins sé af sóknarprestinum
haldin stutt ræða,“ komi: „Við
skólasetningu hvert ár heldur sókn-
arpresturinn stutta ræðu.“
8. gr.
Á eftir orðunum: „.... eða í
tölum 6, 5, 4, 3, 2, 1,” komi: „ásamt
brotunum Vs, %, o. s. frv.“
14. gr.
Hún orðist þannig: „Kennarar við
skólann skulu skipaðir af skóla-
nefnd og laun þeirra ákveðin af
hreppsnefndinni eftir tillögum
skólanefndar.“
Með þessum breytingum á
reglugerðinni var vald sýslu-
nefndar yfir skólanum, ráðn-
ingu kennara og launakjörum,
að engu gert Þegar sýslunefnd-
in árið 1900 afsalaði sér þannig
öllu valdi yfir barnaskóla Vest-
mannaeyja, skipuðu hana þess-
ir menn: Magnús sýslumaður
Jónsson, tengdasonur séra Odd-
geirs sóknarprests, séra Odd-
geir sóknarprestur, Gísli Stef-
ánsson í Hlíðarhúsi, sem verið
hafði í skólanefndinni frá því
að hún var fyrst kosin (1885)
og J. P. Bjarnasen, verzlunar-
stjóri, gjaldkeri skólanefndar-
innar, síðan Sigurður Sveinsson
í Nýborg hvarf frá því starfi.
Það átti eftir að sýna sig, að
þessar breytingar á reglugerð-
Gisli Stefánsson, verzlunarrn. og bóndi.
inni um alræðisvald skóla-
nefndarinnar um ráðningu
kennaranna, starf þeirra og
stöður, drógu dilk á eftir sér,
svo sem sýnt skal og sannað í
næsta kafla fræðslusögunnar.
Styrkur úr landssjóði veittur
barnaskóla Vestmannaeyja á
árunum 1885—1904:
Árið 1885 .. ... Kr. 100,00
— 1886 ... ... — 200,00
— 1887 ... ... — 200,00
— 1888 ... ... — 130,00
— 1889 ... ... — 80,00
— 1890 ... ... 100,00
— 1891 ... ... — 105,00
— 1892 ... ... — 125,00
— 1893 ... , . . . — 160,00
1894 145 00
— 1895 .. — 104,00
— 1896 .. . . . . 200,00
— 1897 .. . . . . 263,00
— 1898 . . . . . . — 264,00