Blik - 01.05.1962, Page 176
174
B L I K
um við afbragðs góðar kjöt-
bollur og fleira góðgæti, sem
við nutum af hjartans lyst, og
var allfurðulegt, hvað við gát-
um innbyrt af matnum.
Um kvöldið var ranglað um
bæinn um stund en síðan hald-
ið á Skjaldbreið til skrafs og
ráðagerða um komandi kapp-
leiki. Einnig hresstum við upp
á sálina með lútsterku rjóma-
kaffi og kökum. Var það borið
fram af yndislegum stúlkum,
sem báru hvítar svuntur og
höfuðbúnað, hvíta sokka, en
svarta kjóla og skó. Það var
einkennisbúningur fyrir Hótel
Skjaldbreið og þótti smekkleg-
ur. Ég hygg að Elías Hólm
hafi þá rekið gistihúsið.
Samkv. ákvörðun fyrirliðans
mættu allir morguninn eftir
suður á Melavelli til æfingar.
Georg bað okkur að æfa var-
lega, svo að enginn meiddist. Þó
fór svo, að tveir okkar meidd-
ust lítillega Verst var, að
þarna var um grjótharðan mal-
arvöll að ræða. Slíkum velli
vorum við óvanir með öllu.
Eyjamenn voru í þann tíma á
undan mörgum öðrum og höfðu
góðan grasvöll innan við Há-
stein. Honum var síðar breytt
í malarvöll, en nú mun í ráði
að breyta honum aftur og gera
þar grasvöll.
Á Melavellinum ’hoppaði bolt-
inn einhver ósköp og miklu
meir en við áttum að venjast.
Þetta gerði okkur mikinn óleik
þá strax og enn meiri síðar. Það
tekur góðan tíma að venjast
slíkum vallarumskiptum og út-
heimtir malarvöllur raunveru-
lega allt aðra meðferð knattar.
Fyrsta daginn skoðuðum við
borgina. Héldum við hópinn og
vöktum nokkra athygli, þar eð
spurzt hafði undra fljótt að
við Eyjamenn ætluðum að taka
þátt í knattspyrnumótinu. Við
vorum víst hálfgerðir útlend-
ingar í augum Reykvíkinga.
Georg var strangur við okkur
tun góða og prúðmannlega
framkomu og gætti okkar vel
fyrir öllum utanaðkomandi á-
hrifum! Við hlýddum honum
skilyrðislaust og er mér óhætt
að fullyrða, að hann var ánægð-
ur með framkomu okkar í hví-
vetna.
Miðvikudaginn 1. sept mátti
sjá eftirfarandi auglýsingar í
bæjarblöðunum um kappleik
Vestmannaeyinga, sem þá léku
sinn fyrsta leik á mótinu. Það
var við Knattspyrnufélag
Reykjavíkur.
Dagbl. „Vísir“ sagði: „I
kvöld keppa Vestmannaeyingar
og K.R. — A!lir út á völl. Mjög
spennandi leikur. Tekst Eyja-
mönnum að sigra hið sterka
lið K.R.-inga?“
Ekki vantaði slagyrðin. 1
Morgunblaðinu stóð þetta m. a.:
,,í kvöld mun mörgum þeim, er
áhuga hafa á knattspyrnu,