Blik - 01.05.1962, Page 237
B L I K
235
kona hans hafi staðið dyggi-
lega við hlið bónda síns og sýnt
mikinn dugnað á hinum erfiðu
frumbýlingsárum þeirra í Utah.
Þau hjón efnuðust vel á hinni
miklu sauðfjárrækt sinni.
Tveir af sonum þeirra hjóna
urðu einnig miklir fjárbændur.
Samúel var talinn dugnaðar-
garpur mikill, er hann bjó í
Vestmannaeyjum, ágætur sjó-
maður og einhver allra dugleg-
asti lundaveiðimaður þar með
grefilinn að vopni. Fjallamaður
var hann einnig ágætur. Það
var mikils metið í Eyjum, er
menn voru djarfsæknir og ó-
trauðir að afla sér bjargar í bú.
Sjálfsagt hefur hann og verið
vel íþróttum búinn, því að eigi
hafði 'honum orðið mikið fyrir
að stökkva hæð sína í loft upp,
sögðu gamlir Vestmannaeying-
ar, og marka djúpt spor með
hælnum, er verið var að grafa
upp lundaholurnar.
Samúel bjó á jörð sinni í
Spanish Fork unz hann andað-
ist. Hafði hann þá bætt við sig
löndum og var talinn búhöldur
mikill. Þessi stóra bújörð, sem
fyrsti íslenzki landneminn rækt-
aði í Vesturheimi, er fyrir
löngu bútuð niður í smærri
jarðarskika.
Samúel Bjarnason komst til
mannvirðinga hjá mormónum.
Hann fór í trúboðserindum fyr-
ir kirkju þeirra til Islands árið
1874. Hann lézt í Spanish Fork
1890. Margrét kona hans lifði
hann lengi og dó í hárri elli í
Spanish Fork.
Fjölkvæni var leyfilegt meðal
mormóna í fyrstu, en var af-
tekið síðar (1896). Samúel
Bjarnason og fleiri af frum-
byggjunum rnrrnu hafa átt
fleiri en eina konu.
Samúel og Margrét höf ðu eign-
ast dóttur, meðan þau bjuggu í
Hóls’húsi í Vestmannaeyjum.
Hún var skírð Sigríður, f. 14.
júlí 1850. Dó ung. Annað barn
misstu þau og voru bamlaus,
þegar þau fóru til Ameríku.
Albróðir Margrétar Gísla-
dóttur, konu Samúels, var
Hannes Gíslason, tengdafaðir
Hjálmars Isakssonar í Köfung
í Eyjum. Hálfsystir hennar var
Þorgerður Gísladóttir, fyrri
kona Sigurðar hreppstjóra Sig-
urfinnssonar og móðir Högna
Sigurðssonar í Vatnsdal í Eyj-
um. Þeim systrum, Margréti og
Þorgerði, svipaði mjög saman,
ef dæma má eftir mynd, er birt
var í Almanaki Ö. Þorgeirsson-
ar í Winnipeg af fyrstu ís-
lenzku landnámshjónunum.
Margrét mun hafa líkzt Gísla
föður sínum.
Nöfn Samúels Bjarnasonar
og Margrétar Gísladóttur konu
hans eru fyrstu nöfnin á minn-
isvarðanum um fyrstu íslenzku
landnemana í Utah, sem „dætur
frumbyggjanna“ létu reisa og
afhjúpaður var af tveim niðj-