Blik - 01.05.1962, Síða 253
B L I K
251
„TJtvegsbankinn, Reykjavík.
Samþykkjum leigja af yður
frysti’hús Ástþórs Matthíasson-
ar hér fyrir ársleigu 6000 krón-
ur reiknað frá 1. sept. þetta ár
til jafnlengdar 1933. Leigan
greiðist helmingur kr. 3000,00
20. jan. 1933. Eftirstöðvarnar
20. júní sama ár. Tilboð þetta
er bundið því skilyrði, að samn-
ingar takist við Óskar Halldórs-
son h.f. samkvæmt skeyti hans
dags. 24. þ.m. og voru skeyti
dags. í dag viðvíkjandi síldar-
kaupum. Morgunsvar.
Isfélag Vestmannaeyja."
I september um haustið kom
í Ijós, að Óskar Halldórsson h.f.
stóð ekki við tilboð sitt um sölu
síldarinnar samkv. skeytunum
og ráðstafaði annað allri þeirri
síld, sem hann hafði ráð á.
Að þessu sinni voru mestu
síldarkaupin gerð við Ásgeir
Pétursson, Siglufirði, sem jafn-
an reyndist traustur viðskipta-
vinur ísfélagsins um sölu beitu-
síldar. Þar ríkti gagnkvæmt
viðskiptatraust.
Á aðalfundi Isfélagsins 17.
sept. 1932 voru reikningar árs-
ins 1931 lagðir fram í tvennu
lagi. Árni Filippusson, gjald-
keri, sem lézt í jan. 1932, hafði
lokið reikningsuppgjöri frá 1.
jan. tii 31. ágúst 1931. Síðan
hafði Friðrik Þorsteinsson sam-
ið reikningana til áramóta. Ekki
urðu fundarmenn á eitt sáttir
um reikningana og kusu þvi
yfirendurskoðendur, sem Skyldu
Ijúka verki sínu og skila áliti
eftir mánuð. Vegna þessa var
aðalfundi frestað. Framhald
hans fór síðan fram 30. des. um
veturinn og voru þá reikning-
arnir samþykktir einróma, eftir
að yfirendurskoðendur höfðu
skýrt sjónarmið sín og athuga-
semdir.
Á kreppuárunum féll kjöt
mjög í verði á erlendum mark-
aði. Haustið 1932 keypti Isfé-
lagið 15—20 smálestir af 1. og
2. flokks dilkakjöti af Kaupfé-
lagi Borgfirðinga eins og svo
oft áður, á 63 aura 1. flokks
kjöt og 54,6 aura 2. flokks kjöt.
Er þá afsláttur reiknaður, en
hann nam 16% af eiginlegu
verði kjötsins, sem var 75 aurar
og 65 aurar.
Á þessum aðalfundi voru
þessir menn kosnir í stjórnina:
Ólafur Auðunsson með 86 at-
kvæðum, Magnús Guðmunds-
son með 76 atkv., Gísli Jónsson
með 62 atkv., Jón Einarsson
með 60 atkv. og Þorsteinn Jóns-
son með 51 atkv. Atkvæðatalan
sannar, hve mikið traust Ólafur
Auðunsson hafði flest-allra fé-
lagsmanna til þess að glíma við
viðskiptaerfiðleikana og ráða
viturlega fram úr vandamálun-
um. Þá er einnig atkvæðamagn
það, sem Magnús Guðmundsson
fær á fundinum, eftirtektarvert,
því að hann hafði verið í stjórn
ísfélagsins árum saman. Ekki