Blik - 01.05.1962, Page 306
304
B L I K
klúbbs Vestmannaeyja, Friðþjófur
Johnsen, hdl., ræðu þá, sem hér fer
á eftir. Hún er bæði fróðleg um
liðna tíð varðandi framhaldsfræðslu
í Eyjum og svo eru í henni sprettir,
sem vöktu almennan hlátur í hófi
skólans. Þó skai það tekið fram, að
ræðan er svona aðeins skuggi af
sjálfri sér, á móti því að heyra og
sjá hdl. sjálfan flytja hana. Ekki
fleiri orð um það, en hér kemur
ræðan:
RÆÐA forseta Rotarjklúbbsins
við slit 4. bekkjar 11. febr. 1962:
„Herra skólastjóri, kennarar,
nemendur og gestir.
Enn þá einu sinni veitist okkur
nokkrum félögum í Rótarýklúbbi
Vestmannaeyja sú ánægja að vera
staddir hér í boði Gagnfræðaskól-
ans. En eins og ykkur er öllum vel
kunnugt, hefir komizt á ánægjulegt
vinasamband milli skólans og
Klúbbsins.
Ekki er ýkjalangt síðan, að Vest-
mannaeyingar áttu þess kost að
smnda gagnfræðanám í Eyjum —
heldur urðu þeir að sækja það nám
til annarra landshluta. Menntaskól-
inn var í Reykjavík og gagnfræða-
skóli á Akureyri, og fékk hann
seinna rétt til þess að útskrifa stúd-
enta. Geta allir sagt sér það sjálfir,
að kostnaðurinn við að sækja nám-
ið og smnda það í öðmm lands-
hlutum, hefir verið mjög mikill.
Auk þess voru ferðirnar til og frá
skólunum dýrar og á stundum
hættulegar. Minnist ég þess t. d., að
árið 1927 var ég 74 klukkutíma —
þ. e. á 4. sólarhing á leiðinni frá
Rvík til Vestmannaeyja í jólafrí-
inu. Þá voru ekki flugsamgöngurn-
ar hafnar. Hvað er annars langt
síðan flogið hefir verið núna —
eins og menn segja? — þann 11. 2.
Fyrsti vísir til framhaldsnáms í
Eyjum — auk sjómannanámskeiða
— var hinn svonefndi Kvöldskóli.
Fékk hann inni í Barnaskólanum
— þeim er byggður var um 1915.
Skólinn starfaði aðeins á kvöldin
eða seinni hluta dags; þegar lokið
var kennslu í barnaskólanum. Að-
eins var kennt hluta úr vetri. Oft
voru kennararnir ærið misjafnir —
þótt oft væru þeir góðir — á sína
vísu. Man ég t. d. vel eftir því, að
einn þeirra sagði um sjálfan sig: „I
svona starf fara annað tveggja,
vandræðamenn eða menn, sem eru
í vandræðum." Ekki virðist þá hafa
verið vel að skóla þessum né
kennsluliði búið.
Nú er þetta sem betur fer orðið
gjörbreytt. Risinn er af grunni hin
glæsilegasta skólabygging með
fríðu kennaraliði og myndarlegum
nemendum, sem skipt er í margar
bekkjardeildir. Kvöldskólinn gamli
var aðeins í einni kennslustofu —
nemendur um 20 hræður.
Nú er í Gagnfræðaskólanum
lögð mikil rækt við móðurmálið —
svo sem sjálfsagt er. Flestar ef ekki
allar kennslubækurnar eru á ís-
len2ku svo sem við aðra framhalds-
skóla. Oðru vísi mér áður brá.
Fyrir 30—40 árum voru flestar
kennslubækurnar t. d. í Mennta-