Blik - 01.05.1962, Síða 326
324
B L I K
Þessi þýðing Jóhanns Þ. Jósefssonar
á Jeppa á Fjalli mun nú með öllu
glötuð. (Sögn Fríðar Lárusdóttur og
Þorsteins Johnson).
Um áramótin 1904—05 var svo
sami leikflokkur á ferðinni með
leikrit eftir Hostrup. Það var
,,Þrumuveðrið" (5 þættir), sem var
leikið í Gúttó. Einnig var þar Þor-
steinn Johnson hvíslari og aðstoð-
armaður á sviðinu Hann framleiddi
þrumuveður með því að hringla
baunum í dósum og varð af því
feikna gauragangur. Hann lék ekk-
ert hlutverk og mundi ekki hlut-
verkaskipan, en sagði, að það hefði
verið flest sama fólkið, sem lék
í Jeppa fyrst á árinu. Þó var nú
Lára Guðjónsdóttir á Kirkjubæ
með í Þrumuveðrinu. (Sögn Þorst.
Johnson 1958). Það mun hafa ver-
ið 1903—04, að „Hermannaglett-
ur" eftir Hostrup voru sýndar í
„Kumbalda", og var það í fyrsta
skipti, sem það leikrit var sýnt í
Eyjum, að því er vitað verður. Þá
er sagt, að leikið hafi þar Júlíana
Sigurðardóttir, sem lék Emelíu, Jó-
hann Þ. Jósefsson. Edv. Frederik-
sen, Gísli Lárusson, Guðlaugur
Hansson og Jón Einarsson. Leik-
ritið var leikið nokkrum sinnum í
Kumbalda við góða aðsókn, enda
er það bráðskemmtilegt, þó stutt
sé.
Tveim árum síðar var leikrit
þetta endurtekið en nokkuð breytt
hlutverkaskipan. Leikritið hefir átt
góðum viðtökum að fagna hér, og
því merkilegra, hvað langt er síðan
„Hermannagletturnar" hafa verið
túlkaðar fyrir almenningi. (Sjá síð-
ar).
Margir voru þeir, er heldur vildu
sjá sjónleik í Kumbalda en Gúttó
og Tangahúsinu. En Kumbaldi var
sem kunnugt er eitt af verzlunar-
húsum Brydes verzlunar, og að þess
tíma mati bezta leikhúsið. Leiksvið-
ið var rúmt, sett upp og tekið niður
eftir vild. Það var við vesturgafl
hússins. Sætin þóttu góð, en voru
reyndar baklausir bekkir, komið
fyrir á búkkum. Til skamms tíma
sáust á innri vegg salsins stórir,
rauðir tölustafir. I beinni línu frá
tölunum, voru bekkirnir og sýndu
tölurnar röð þeirra. Aftast í húsinu
voru þessar tölur nokkuð hærra upp
á veggnum, en því olli, að aftast
í húsinu voru bekkirnir hækkaðir
upp.
Það var kostur við Kumbalda, að
leikfólkið gat nær undantekningar-
laust æft þar, ef það hentaði bezt,
og ávallt á leiksviðinu. Húsið var
laust, sem fyrr segir, og tekið til
nota á haustin, eftir að búið var að
tæma húsið að afurðum verzlunar-
MYNDIN TIL HÆGRI: n^=
MYND AF KUMBALDA, austurstafn og
suðurhlið. Hann stóð 8—9 metrum vestan
við Austurbúðina. Upprunalega voru þar
tvö hús, en Kumbaldi siðan byggður úr
peim báðum. Suðurhluti hussins var
notaður til geymslu á þurrfiski á sumrin.
En er dönsku verzlunarskipin höfðu tekið
fiskinn til útflutnings siðari hluta sumars,
var tekið til að undirbúa húsið fyrir
leiksýningar. — Salt var geymt árið i kring
i norðurhluta hússins. — Kumbaldi brann
til kaldra kola aðfaranótt 8. jan. 1950.