Blik - 01.05.1962, Blaðsíða 340
338
B L I K
ekki látið sitja við orðin ein, held-
ur hafizt handa um útvegun á leik-
fólki. Síðan hófust æfingar á nýj-
um leikritum hér. Samkv. bókum
Líknar voru fyrst sýnd leikritin
„Villidýrið’' eftir E. Bögh; og „Bezt
scm vitlausast" (höfundur ókunn-
ur). og Apakötturinn eftir Heiberg.
Ekki verður um það efazt, að Hall-
dór læknir hafi útvegað leikritin
og séð um og leiðbeint um sviðs-
secningu þeirra. Af bókum kvenfél.
Líkn verður ekki séð, hvert þessara
þriggja leikrita hefir verið fyrst
tekið til sýningar, en eftir innfærsl-
um teknanna virðist Apakötturinn
hafa verið fyrst leikinn, þá Villi-
dýrið og svo Bezt sem vitlausast.
Ekki verður það heldur séð, hverjir
hafi skipað hlutverkin, en að öllum
líkum hafa það verið konur úr
kvenfélaginu, eiginmenn þeirra eða
vinir og velunnarar þess. Þó hefi
ég heyrt þessa helzt tilnefnda í
Apakettinum, Iversen: Guðjón Guð-
jónsson, Frú Sörensen: Sigurborg
verzlunarstúlka hjá G. J. Johnsen,
Oli gamli: leikinn af Guðjóni
Jósefssyni, Margrét: Guðbjörg
Gísladóttir, og unga manninn Lin-
dal: Kristján Gíslason. I „Villidýr-
iuu" hef ég helzt heyrt talað um
þau Petersen símstj., sem lék Villi-
dýrið, Guðbjörgu Gísladóttur konu
hans, Theódóru Gísladóttur, Stakka-
gerði, og Steingrím Magnússon á
Miðhúsum, er þá var verzlunarmað-
ur hjá Bryde. Leikrit þetta er eftir
Erik Bögh. (Frásögn Stgr. Magnús-
sonar nú í Rvík, en þetta hefir þá
verið síðasta hlutverk Theodóru,
þar eð hún fór til U.S.A. sumarið
1909).
I Bezt sem vitlausast veit ég
ekki um hlutverkaskipun, nema
þau Petersen, sem lék Schwanner
ofursta, og Guðbjörgu konu hans,
er lék þjónustustúlkuna. Auk þess
léku að sagt er Agústa Eymunds-
dóttir og Arni Gíslason o. fl. Kostn-
aður við að koma þessari leikstarf-
semi kvenfélagsins á stað hefir ver-
ið nokkur, einkum vegna leiksviðs-
kostnaðar svo sem leiktjalda, ljósa-
umbúnaðar, efni til gervisgerða o.
m. fl. En sýningar félagsins báru
sig vel fjárhagslega.
Um haustið 1909 og fram á ver-
tíð var svo leikið nýtt leikrit á veg-
um kvenfélagsins. Það var „Æfin-
týri á gönguför" eftir C. Hostrup, í
fjórum þáttum. Er þetta danskur
söngva- og gleðileikur, sem var
mjög vinsæll á meginlandinu. Vel
gekk með útvegun á leikurum og
æfingar gengu vel. Var leikritið
sýnt við fádæma góðar undirtektir
og gaf vel í sjóð félagsins. Lækn-
irinn hafði hitt naglann á höfuðið.
Leikstarfsemin var örugg fjáröflun-
arleið ekki síður í Eyjum en ann-
arsstaðar, skemmtun og menningar-
auki, sem Eyjamenn vildu sízt án
vera.
Leikendur í Æfintýrinu voru þá,
(Sögn Stgr. Magnússonar og Guð-
bjargar Gísladóttur 1961, og Sveins
Jónssonar).
Skrifta-Hans eða Hans Mortensen,
Olafur Ottesen, Vísi.