Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Qupperneq 84
1952
82
maður, varð hitalaus á skömmum
tíma, en nokkurn tíma á eftir hafði
hann pleuritiseinkenni. Smábatnaði
við rúmlegu og hvíld. Ræktanir úr
hráka reyndust neikvæðar fyrir berkl-
um.
Nes. Fáein tilfelli, ekkert alvarlegt.
Öll auðlæknuð með pensilíni.
Eyrarbakka. Óvenjumörg tilfelli.
17. a, b. Mænusótt
(poliomyelitis anterior acuta).
Töflur II, III og IV, 17. a, b.
Sjúkl. (a)1) ...
(b)z) ...
Dánir ...........
1948 1949 1950 1951 1952
(26 11
) 59 19
„ 1
538 622 17
2 „ 1
Stakk sér niður i 7 héruðum (Rvík,
Fiateyrar, Hvammstanga, Húsavikur,
Egilsstaða, Vestmannaeyja og Stórólfs-
hvols), oftast örfá tilfelli á hverjum
stað. Bar helzt á faraldri á Húsavik
og i Vestmannaeyjum, en í þeim far-
öldrum gætti ekki lamana, og má efast
um, að verið hafi hin eiginlega mænu-
sótt.
en náði sér fljótlega. Auk þess veikt-
ust 6 skólanemendur, sem allir höfðu
samband innbyrðis, en varð þó ekki
rakið til fyrstu tilfellanna tveggja.
Enginn þessara síðast nefndu lamað-
ist, og náðu þau sér fljótt.
18. Rauðir hundar (rubeolae).
Töflur II, III og IV, 18.
1950 1951 1952
135 75 41
»» »» »»
Síðan mikill landsfaraldur rauðra
hunda gekk yfir landið fyrstu ófrið-
arárin (1940—1941), hafa jafnan á
hverju ári verið skráð æðimörg til-
felli rauðra hunda víðs vegar um
land, oftast nokkrir tugir eða á annað
hundrað tilfella, eitt árið þó nokkru
fleiri (1947: 357). Þetta ár dreifast
tilfellín á 8 læknishéruð og vist hvergi
um eiginlegan faraldur að ræða, nema
á Akureyri, þar sem 12 tilfelli eru
skráð á einum mánuði. Um rétta
greiningu einstakra tilfella má ætið
efast.
1948 1949
Sjúkl. 157 54
Dánir „ „
Rvík. Enginn dáinn.
Dlöncluós. Hefur ekki látið á sér
bera, og virðist vera komið hér all-
mikið ónæmi fyrir henni, þótt ekki sé
því að treysta, ef nýjar tegundir koma
til.
Sauðárkróks. Engin í ár. Má telja
það óvenjulegt hér.
Húsavikur. 9 tilfelli skráð i nóvem-
ber og fyrra hluta desembermánaðar,
öll á Húsavík. Allmikill hiti i byrjun,
mikill hálsrigur og verkir niður i bak
og útlimi. Oftast ógleði. Engin greini-
leg lömun, en sumir lengi að ná sér.
Vestmannaeyja. Veikin barst hingað
beint frá Danmörku í nóvember með
barni einu, 1—2 ára, sem veiktist 3
vikum eftir að það kom og dó úr
andfæralömun eftir einn sólarhring.
Hálfum mánuði síðar veiktist ung
kona, sem komið hafði á heimili
barnsins, rétt áður en það veiktist.
Ilún fékk lömun á fæti og handlegg,
1) a: með lömun (paralytica).
b: án lömunar (aparalytica).
Sauðárkróks. Örfá tilfelli skráð, en
munu hafa verið eitthvað meira út-
breiddir.
19. Skarlatssótt (scarlatina).
Töflur II, III og IV, 19.
1948 1949 1950 1951 1952
Sjúkl. 193 361 69 42 21
Dánir „
Skarlatssóttartilfellin eru skráð i 3
héruðum (Rvík 18, Sauðárkróks 2 og
Eyrarbakka 1). Viðar hefur hún þó
komið við en skráð er, svo sem á
Blönduósi, en hvergi verið veruleg
brögð að. Hin nýju igerðarvarnarlyf
hafa vissulega gert skarlatssótt að
annarri sótt en hún var.
Dlönduós. Skráð 2 tilfelli í ágúst
(ekki á mánaðarskrá), komin úr
Reykjavík. Fleiri tilfelli munu þó hafa
komið fyrir.
Sauðárkróks. 2 tilfelli, sitt á hvorum
stað og með nokkurra vikna millibili.
Var væg og batnaði fljótt við pensilín.