Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Blaðsíða 129
127 —
1952
uðum fyrir tímann, var vanþroska og
líflítið. LeiS það út af eftir ca. 8 tíma
frá fæSingu. Mín var vitjaS til 7 sæng-
urkvenna; gaf Bi-vítamín, sem virðist
gera samdrætti reglulegri, stytta og
létta fæðingarnar; pitúitrín einnig
gefið, ef þess þurfti, og konurnar
deyfðar. Engra meira háttar aðgerða
þurfti.
Brei&umýrar. Einu sinni var lögð á
töng vegna langdreginnar fæðingar,
þreytu og hægs hjartsláttar fósturs.
I annað sinn var fylgju þrýst út a. m.
Credé. Er það 3. fæðing þeirrar konu,
og hefur alltaf þurft aS losa fylgjuna
þannig. Hinar fæSingarnar tíðinda-
litlar.
Húsavíkur. Viðstaddur 65 fæðingar,
þar af 40 á sjúkrahúsinu á Húsavík.
3 börn fæddust andvana; 2 þeirra dóu
fyrir fæðingu (að líkindum fylgjulos)
og 1 í fæðingu: randstæð fylgja, mikil
blæðing; tókst aS ná barninu með
töng. 1 barn lifði aðeins í 12 tíma
(andlitsstaða, langdregin fæðing, barn-
ið hálfdautt, atelektase). AnnaS barn
dó eftir 2 sólarhringa (sitjandastaða,
framdráttur, ruptura tentorii). Einu
sinni lögð á töng vegna sóttleysis (20
ára frumbyrja). 1 vending gerð (31
árs fjölbyrja). Barnið í þverlegu með
framfallinn handlegg. Bar nokkuð á
magnleysi í handlegg barnsins, enda
niun hann hafa orðið fyrir allmiklu
hnjaski. í öðrum tilfellum aðeins um
deyfingu að ræða og nokkrum sinnum
hert á sótt.
Vopnafj. Einu sinni barn dregið
nieð töngum frá primipara, lamaðri
eftir mænusótt.
Bakkagerffis. Ljósmóðir getur ekki
um fósturlát, en læknis var vitjað
vegna þriggja. Var fjórum sinnum við
fæðingar. Þrívegis var ekkert sérstakt
að, en einu sinni vitjað vegna gang-
lausrar fæðingar. Konan var 22 ára
primipara. Hafði fæöingin, sem byrj-
aði með því, að vatn fór, staðið um
það bil 1 % sólarhring, er útvíkkun
' ar búin, en nokkru áður höfðu fóst-
urhljóð verið orðin léleg, og voru nú
um 96 á minútu. Sjálf var konan
þreytt og púlshröð með nokkrum hita.
Við athugun kom í ljós, að höfuð stóð
hátt í grind í framhöfuSstöðu, illa
beygt. Ekki tókst að snúa höfðinu og
ekki heldur að leggja töng á það, eins
og það var. Reynt var þá á ný að
beygja og snúa, en við það losnaði
höfuðið úr skorðum og varð laust
fyrir ofan grind. Er konan vaknaði,
var hún furðu hress. Gaf ég henni þá
morfín og lét hana liggja á vinstri
lilið. Urðu hriðir nú mun kröftugri en
áður. Höfuð skorðaðist fljótlega á ný,
og fór fæöingin að ganga sæmilega.
Þar sem fósturhljóð voru hætt að
heyrast, sá ég ekki ástæðu til að flýta
neitt fyrir henni. Eftir 4 klukkustund-
ir fæddist andvana barn (í 1. höfuð-
stöðu). Lækur fjórvafinn utan um það
og teygt á honum. Lífgunartilraunir
báru ekki árangur. Eftir fæðinguna
hafði konan 39,6° hita. Fékk pensilín
og varð hitalaus á 4. degi. Náði sér á-
gætlega. Eftir að tangartakið mistókst,
ráðfærði ég mig simleiðis við héraðs-
lækninn á Seyðisfirði. Hann brást vel
við og lofaði að koma. En erfitt
reyndist að fá farkost, og leiðin er
löng, svo að fæðingin var næstum um
garð gengin, þegar hann kom.
Seyðisfj. Fæðingar gengu yfirleitt
vel. I 3 skipti þurfti að hjálpa kon-
um við fæðingu. Hjá 27 ára og 29 ára
fjölbyrjum var fylgja föst, og þurfti
hjá báðum að gera lysis manualis. 1
tviburafæðing — drengir, báðir ófull-
hurða, og þurfti að gera framdrátt á
hinum seinni. Læknir var viðstaddur
flestar fæðingarnar. Engin kona fékk
hita í sængurlegunni.
Nes. Læknir kvaddur til flestra fæð-
andi kvenna, oftast til að gefa deyf-
andi lyf og nokkrum sinnum einnig
vegna hríðaveiklunar og blæðinga í
fæðingu. Fæðingar gengu stórslysa-
laust. Fósturlát 2, mér vitanlega.
Búffa. Tilefni vitjana ljósmóðurleysi
eins og undanfarin ár. 3 sinnnm þurfti
að herða á sótt. í 1 skipti gerður
framdráttur vegna sitjandafæðingar
(primipara). Eitt sinn þurfti að losa
og sækja fasta fylgju með hendi.
Kunnugt um 3 fósturlát.
Kirkjubæjar. 1 tangarfæðing á ár-
inu. Lifðu bæði kona og barn. Konan
fékk slæma spangarrifu, sem ekki
tókst að gera nægilega vel við. Var
það leiðrétt á fæðingardeild Lands-