Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Blaðsíða 136
1952
134
urðu á árinu í héraðinu. Komið var
hingað með 2 sjómenn frá Norðfirði.
Höfðu þeir brennzt illa. Kviknað hafði
í vélarrúmi háts þeirra, en þeir voru
þar að vinnu. Gert var að sárum
þeirra liér á sjúkrahúsinu, þar sem
þeir siðan dvöldust, unz sár þeirra
voru gróin. Þýzkur togarasjómaður
varð fyrir slysi á hafi úti. Fór hann
í vir, og sleit af honum fótinn efst á
læri. Fór héraðslæknir til móts við
togarann og mætti honum hér úti fyrir
firðinum. Var þá maðurinn látinn.
Nes. Slys alltið, en flest smávægileg.
Togarasjómaður lenti með höfuð milli
vírrúllu og siglutrés við vinnu úti á
rúmsjó, fékk fract. cranii og dó sam-
stundis. 2 sjómenn brenndust allilla á
andliti og handleggjum við sprengingu
í vélarrúmi fiskiskips hér við bryggju.
Var búið um sárin hér til bráðabirgða
og mennirnir síðan fluttir á sjúkrahús
á Seyðisfirði. Heilsaðist eftir atvikum
vel. Önnur skráð slys: Fract. costae 3,
cruris 1, radii 2, claviculae 2, fibulae
1, digiti 2, nasi 1. Combustiones 6.
Distorsiones 16. Lux. humeri 2. Corp.
aliena oculi 25, nasi 2, subcutis 8.
Intoxicationes 2 (smávægilegar). Vul-
nera incisa 30, contusa 21, puncta 8.
Commotiones cerebri 2. Contusiones
9. Auk þessa: Ungur maður þunglynd-
ur slcaut sig til bana, skammt frá
lieimili sinu í Norðfjarðarhreppi.
Búða. Mörg minna háttar slys, krók-
stungur, mar og skurðsár. Auk þess
lux. cubiti 1 (drengur var að knatt-
spyrnu, féll á vinstri hönd). Fract.
claviculae 1 (sjómaður rann til á liálu
skipsþilfari og féll á vinstri öxl).
Djúpavogs. í nóvember bar svo illa
til á bæ í Breiðdal, að um morgun
einn, þegar fólkið vaknaði, gat það
sig naumast hreyft í rúmunum. Gat
húsbóndinn um síðir skreiðzt fram úr
og anzað í símann, sem hringt hafði
lengi og ákaft. Var þá komið til hjálp-
ar fólkinu frá næsta bæ. Fundust þá
kolaglæður í öskufötu í eldhúsinu,
sem eimdi úr. Hresstist fólkið furðu-
fljótt, eftir að loftað hafði verið vel
út úr húsinu. Annars fá slys á árinu.
Mest um smáskurði. 2 ungir menn
fóru úr axlarlið, báðir sama daginn,
og gamall maður nokkru siðar. Piltur
um tvítugt brenndist mikið i andliti
og á höndum. Var hann að setja vél
i gang i báti til að flytja héraðslækn-
inn, og kviknaði i mótorhúsinu. Greri
fljótt og vel. Fract. supracondylica
humeri á 5 ára dreng. Var það slæmt
brot, og greri epicondylus lateralis
ekki við, en functio handleggsins samt
góð. Fract. Collesi 1, cruris 1 (telpa
6 ára, sem var að renna sér á sleða
og lenti á girðingarstaur; hrukku báð-
ar pipur i sundur á hægra fæti). 10
ára drengur skar sig þvert yfir úln-
lið á gleri og i sundur sinar og arteria
ulnaris, sem um þurfti að binda til að
stöðva blóðrás. Greri vel.
Hafnar. Óverulegar. Lux. liumeri 2,
fract. radii 2, digiti pedis 1, commotio
cerebri 1, ambustio 2.
Kirkjubæjar. 1 slys, sem orð er á
gerandi, varð hér á árinu. Piltur datt
af vörupalli og varð undir afturhjóli.
Hann grindarbrotnaði, og þvagrásin
skaddaðist. Var hann sendur i sjúkra-
flugvél á Landsspítalann og náði sér
alveg.
Víkur. Fract. radii 1, Collesi 1, colli
femoris 1, columnae cervicalis 1. Mað-
ur datt af hlöðuþaki niður á gólf,
laskaðist i hálsliðum, náði sér sæmi-
lega.
Vestmannaeyja. Meðalslysaár. Dauða-
slys alls 4, allt drukknanir. 2 menn
drukknuðu af vélbátnum Veigu, sem
fórst í fiskiróðri 12. apríl. Aðrir skip-
verjar björguðust i gúmbát. Mann tók
út af öðrum fiskibát i róðri, og náð-
ist hann ekki. Maður hvarf af strand-
ferðaskipi á leið hingað frá Reykja-
vík. Um atvik varð aldrei kunnugt.
Meira háttar slys flest á útlendum sjó-
mönnum, sem stunda fiskveiðar hér
við land.
Eyrarbakka. Mjög fátt um slysfarir.
Fract. claviculae 2, costarum 2, anti-
brachii 2 og lux. humeri 1. 9 ára
drengur hljóp á bil, sem stóð við
götuhorn, lenti með höfuðið á pall-
brún og fékk höfuðkúpubrot, sem
greri vel og án varanlegra eftirkasta.
I þessum 39 héruðum, þar sem um
slys er getið, eru þannig talin bein-
brot og liðhlaup, sem hér segir: