Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Page 92
1952
— 90 -
ljós, að sýklarnir voru orðnir ónæmir
fyrir pensilíni og liafa sennilega verið
það, þegar hún sýktist. Fékk hún nú
aureomycín, þar til endurteknar smá-
sjárrannsóknir sýndu fullan bata.
Önnur kona með lekanda mun hafa
sýkzt af utanhéraðsmanni. Fékk hún
pensilínkúr, sem reyndist óvirkur, en
henni batnaði líka af aureomycíni.
Virðist mér þetta benda til þess, að
allútbreiddur sé orðinn gonococca-
stofn, sem pensilin vinnur ekki á
lengur.
Hvammstanga. Tvítugur piltur á
Hvammstanga, sem var á vertíð syðra,
smitaðist af lekanda í Reykjavík.
Sauðárkróks. 1 kona innlend skráð
með gonorrhoea, óvíst um smitun, og
1 útlendur sjómaður einnig með
gonorrhoea. Batnaði báðum við pensi-
lin.
Akureyrar. Eng'ir innlendir skráðir
með aðra kynsjúkdóma en lekanda, og
virðist ástandið í þessum efnum gott
hér. 1 tilfelli með ulcus molle vistað
á sjúkrahúsi Akureyrar (norskur sjó-
maður, ekki skráður).
Seyðisfj. 3 íslenzkir sjómenn fengu
lekanda. 2 þeirra höfðu tekið súlfalyf
nokkra daga, án þess að fá bata, þeg-
ar þeir vitjuðu mín. Batnaði þeim öll-
um vel við pensilíngjöf. í 2 þeirra
varð síðar vart urethritis með smá-
vegis útferð. Reyndist nonspecifica.
Nes. 2 lekandatilfelli skráð á fyrra
hluta ársins, hvort tveggja islenzkir
togarasjómenn, sem smituðust i Eng-
landi. Taldir albata eftir pensilínmeð-
ferð.
Búða. 2 lekandasjúklingar, báðir
farmenn á íslenzku flutningaskipi.
Hafði annar þeirra smitazt á ísafirði,
hinn erlendis.
Vestmannaeyja. Skráðir lekanda-
sjúklingar aðallega sjómenn af fiski-
skipum, erlendum og innlendum.
Keflavíkur. Miklar sögur fara af ó-
lifnaði á Keflavikurflugvelli í sam-
bandi við varnarliðið, og skal ekki
rengt, að einhver fótur sé fyrir þeim,
enda mun það víðast hvar vera svo,
þar sem erlent herlið er á annað borð.
Á hinn bóginn mun hreinlætis og
eftirlits í sjúkdómstilfellum allvel gætt
hjá ameríska varnarliðinu, og er það
lofsvert. Af kynsjúkdómum er aðeins
um lekanda að ræða. Segja má, að
samkvæmt mánaðarskrám Keflavíkur-
lækna komi IV2 tilfelli af lekanda á
mánuði árið um kring af ca. 6—7 þús-
und íbúum, og munu það tiltölulega
fá tilfelli, því að alltaf ber meira á
þessum sjúkdómi í þéttbýli.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Töflur V, VI, VIII, IX og XI.
1. Eftir mánaðaskrám:
1948 1949 1950 1951 1952
Tbc. puhn. 178 126 153 136 141
Tbc. al. loc. 42 43 32 29 45
Alls 220 169 185 165 186
Dánir 47 36 29 31 20
2. Eftir berklabókum (sjúkl. í árs-
lok): 1948 1949 1950 1951 1952
Tbc. pulm. 834 818 841 810 853
Tbc. al. loc. 172 172 155 146 159
Alls 1006 910 996 956 1012
Berkladauði varð á þessu ári þriðj-
ungi minni en á siðast liðnu ári og
hefur aldrei orðið minni, siðan tekið
var að skrá dánarmein hér á landi,
enda nemur hann nú aðeins 0,14%«.
allra landsmanna. Heilaberkladauði
nemur 20% berkladauðans, og er það
óvenjuiega hátt hlutfall.
Skýrslur um berklapróf hafa borizt
úr öllum héruðum, og taka þau til
16128 manns. Skiptist sá hópur þann-
ig eftir aldri og útkomu:
0— 7 ára: 464, þar af jákvæð 25 eða 5,4 %
7—-14 — : 13890,- — 1059 — 7,6 —
14—20 — : 1566,- — 307 — 19,6 —
Yfir 20 — : 208,--— 85 — 40,9 —