Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Page 93
91 —
1952
Skýrsla berklayfirlæknis 1952.
Árið 1952 voru framkvæmdar
berklarannsóknir (aðallega röntgen-
rannsóknir) í 19 læknishéruðum. Voru
alls rannsakaðir 27526 manns, á 6
heilsuverndarstöðvum 23885, aðallega
úr 7 læknishéruðum (berklarannsókn-
ir í Hafnarfirði eru enn framkvæmd-
ar af heilsuverndarstöðinni í Reykja-
vík), en með ferðaröntgentækjum 4212
manns, aðallega úr 13 læknishéruðum
(571 maður var rannsakaður bæði á
heilsuverndarstöð og með ferðarönt-
gentækjum). Fjöldi rannsókna er hins
vegar langtum meiri, þar eð margir
koma oftar en einu sinni til rann-
sóknar, einkum á stöðvarnar; námu
þær alls 35981. Árangur rannsókna
heilsuverndarstöðva er greindur sér-
staklega (sbr. bls. 146—148). Af 1765,
sem rannsakaðir voru með litlum
ferðaröntgentækjum í 12 lælcnishéruð-
um voru 18, eða 1,0%, taldir hafa
virka berklaveiki. 2 þeirra, eða 1,1%»,
voru áður óþekktir. Þessum rannsókn-
um var yfirleitt hagað eins og að und-
anförnu og aðallega rannsakaðir nem-
endur og starfsfólk héraðsskólanna og
fólk samkvæmt vali héraðslækna. Þó
voru heildarrannsóknir framkvæmdar
bæði í Flatey á Breiðafirði (118
manns rannsakaðir) og Grimsey (73
rannsakaðir). í Axarfirði var gerð
hóprannsókn (151 rannsakaður).
Mesta heildarrannsóknin var gerð á
Siglufirði. Hún fór fram i júnímán-
uði og tók 8 daga. (Rannsókn þessi
var framkvæmd með fótóröntgentækj-
um.) Berklapróf var gert á öllum, er
komið gátu til þeirrar rannsóknar, á
aldrinum 1—30 ára. Alls tók rann-
sóknin til 2447 manns, en það voru
98,5% þeirra, er taldir voru geta kom-
ið til rannsóknarinnar. 4, eða 1,6%»,
hinna rannsökuðu reyndust hafa virka
berklaveiki. 1 þeirra, eða 0,4%», var
áður óþekktur. 17, eða 6,9%», hinna
i'annsökuðu voru auk þess taldir þurfa
eftirlits með. 10 þeirra, eða 4,1%», voru
áður óþekktir. Fólki, sem reyndist
neikvætt við berklaprófið, var gefinn
kostur á berklabólusetningu, en að-
eins fáir notfærðu sér það (alls 17).
Á heilsuverndarstöðinni í Reykjavik
voru 387 manns berklabólusettir. Úti
um land hefur bólusetningin verið
notuð samkvæmt ósk og tilvísun hér-
aðslækna. Samstarf hefur enn verið
haft um túberkúlínrannsóknir við
berklarannsóknardeild Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar. Annaðist frú
María Pétursdóttir hjúkrunarkona
þessar rannsóknir, en laun hennar og
ferðakostnaður voru greidd að hálfu
af þessari stofnun.
Akranes. Aðeins 1 hinna skráðu
berklasjúklinga er nýr sjúklingur,
heimilisfastur hér. Annar er héraðs-
búi, sem er kominn af lieilsuhæli, en
hefur ekki verið slcráður hér áður.
Fór beint til Reykjavikur til rann-
sóknar. Hinn þriðji er kona eins
berklasjúklingsins hér, og kom hún
hingað með manni sínum frá Reykja-
lundi, en hefur ekki verið hér áður.
Hinir 3 sjúklingarnir aðfluttir úr
Hólmavíkurhéraði.
Borgarnes. Óbreytt í héraðinu.
Ólafsvíkur. Tbc. renis, 1 tilfelli á
árinu.
Búöardals. 2 nýir sjúklingar á ár-
inu. Annar þessara sjúklinga, 36 ára
húsfreyja, aborteraði. Fékk jafnframt
í upphafi háan hita, sem illa gekk að
þoka niður, þrátt fyrir nýjustu chemo-
therapeutica, svo sem aureomycín,
pensilín, súlfa og streptomycín. Loks
lækkaði þó hitinn eftir um mánaðar-
tíma, en þá fékk konan einkenni
meningitis. Var þá send á Landsspít-
alann og dó þar eftir skanima legu,
án þess að nokkuð fengizt aðgert.
Sectio leiddi í Ijós: Tuberculosis mi-
liaris og meningitis tuberculosa. Ég
held, að óhætt sé að segja, að engan
liafi grunað, að um tuberculosis væri
að ræða, fyrr en sectio leiddi það i
Ijós. 2 börn konunnar, ung, reyndust
bæði tbc-^, og um tuberculosis er
ekki vitað á heimilinu. Hinn sjúkling-
urinn var 19 ára stúlka af Skarð-
strönd, sem vann fyrir sér í Reykja-
vík. Fannst af Berklavarnarstöð
Reykjavíkur með smávegis berklasár
í öðru lunga. Var lögð inn á Vifils-
staðahæli og er blásin þar. Barna-
skólabörn berklabólusett eins og áður,
og hafa 3 komið i ljós, sem eru nú