Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Síða 100
1952
98 —
Leukaemiae diversae............. 9
(4 karlar, 5 konur).
Tumor cerebri .................. 3
Hafnarfj. Af 5 sjúklingum, skráðum
í ársbyrjun, eru 2 dánir á árinu og
1 fluttur i annað hérað. Alls eru 9
sjúklingar dánir úr cancer á árinu
og' 1 úr sarkmeini, en 5 eru á lífi i
héraðinu í árslok, þar af 1 kona skor-
in fyrir 5—6 árum vegna ca. colli
uteri.
Borgarnes. Kona á sjötugsaldri dó
í Reykjavik. Byrjaði með beinhörð-
um eymslalausum eitli ofan viðbeins.
Þrátt fyrir margítrekaðar rannsóknir
tókst ekki að finna upphafsmeinið,
en sinásjárrannsókn á kirtlinum stað-
festi grun um krabbamein.
Ólafsvíkur. 2 tilfelli (1 ca. ventri-
culi — dó á árinu, annar — ca. pros-
tatae, lifandi i árslok).
fíúðardals. 3 sjúklingar dóu á árinu,
allir með carcinoma ventriculi. Gamal-
menni með ca. ani bíður dauða síns.
Gamli maðurinn, sem getið var á síð-
ustu ársskýrslu, með ca. prostatae, lif-
ir enn og er við sæmilega heilsu;
hann etur sínar tabl. stilbestroli.
Reykhóla. 56 ára bóndi úr Gufu-
dalssveit, með adenocarcimona ventri-
culi og metastasis i hrygg og lifur, dó
heima. Hafði fundið til slappleika um
hálfs árs skeið; var sendur til rann-
sóknar á Landakotsspítala i Reykja-
vík. 53 ára karlmaður, gestgjafi frá
Reykjavík, hafði aðeins fundið til
slappleika og óþæginda frá maga ör-
stuttan tíma; var þegar sendur til
Reykjavíkur, eftir að hann hafði leit-
að læknis hér. Kom þá i ljós ca. ventri-
culi, er borizt hafði í eitla. Var gerð
resectio ventriculi, en sjúklingurinn
dó á sjúkrahúsinu (Landsspítalanum)
nokkrum dögum siðar. Mun hafa feng-
ið thrombosis arterialis. 49 ára kona
með melanoma malignum veiktist
fyrst 1949; fékk hún þá smáber á
clitoris og metastasis i náraeitla. Voru
þessir tumorar þá exstirperaðir og
sjúklingurinn fékk röntgengeisla á
Landsspítalanum. Fór sjúklingurinn
aftur á Landsspitalann árið 1950 og
fékk þá einnig röntgengeisla. Siðast
liðin 2 ár hefur sjúklingurinn unnið
mikið, nú síðast liðið ár nær þvi
fulla vinnu og kennir sér nú einskis
meins. Engin einkenni um frekari
metastasis. 56 ára karlmaður með
adenocarcinoma ventriculi var skor-
inn á Landsspitalanum árið 1951;
fékk svo röntgengeisla á siðast liðnu
sumri. Þá sýndu myndir metastasis í
hrygg. Er nú heima alveg rúmliggj-
andi.
Þingeyrar. 3 nýir skráðir, 77 ára
maður með ca. prostatae metastatica,
46 ára bóndi með ca. ventriculi og 71
árs kona með ca. mammae. 2 sjúk-
lingar undir eftirliti, hafa báðir verið
ópereraðir og virðast heilbrigðir.
Flateyrar. Nokkuð ber á því, að
fullhraustir menn biðji um almenna
krabbameinsrannsókn til þesjs að vera
öruggir um að koma ekki of seint.
Bolungarvíkur. 75 ára gamall karl-
maður hefur fengið ca. colli og liggur
heima.
Súðavíkur. 77 ára karlmaður með
ca. ventriculi var fluttur á sjúkrahús
ísafiarðar og andaðist þar. Annar, 78
ára, einnig með ca. ventriculi, andað-
ist i héraðinu. Hafði hann veikzt 1951.
Árnes. 2 sjúklingar létust úr krabba-
meini á árinu. Kona, sem verið hafði
sjúklingur mörg undanfarin ár á
Landsspítalanum, dó úr metastasis
pulmonum út frá glandulae thyreoi-
deae. Karlmaður dó úr metastasis út
frá ca. oesophagi. Hann leitaði fyrst
til mín, rúmum tveim vikum áður en
liann lézt, og þá vegna kvefs og verks
undir hægra siðubarði. Þriðji sjúk-
lingurinn, karlmaður með ca. ventri-
culi, lagðist rúmfastur i lok nóvem-
ber. Hafði fram að því ekki orðið var
við meltingartruflanir né óþægindi
frá maga. Dó stuttu eftir áramótin.
Hvammstanga. 4 dóu á árinu: Frá
árinu áður, 58 ára gamall karlmaður,
með cancer cardiae, dó á skýlinu. 66
ára kona dó þar einnig. 40 ára hús-
móðir á Hvammstanga leitaði fyrst til
mín i maí vegna verkjakasta fyrir
bringspölum og undir hægra síðu-
barði. Ég hélt helzt, að um sjúkdóm
i gallblöðru eða gallgöngum væri að
ræða, en var ekki viss. Það varð því
úr, að hún færi til Reykjavíkur til
rannsóknar. Hún lagðist inn á sjúkra-